Fréttir

true

Tæplega tvær milljónir mjólkurlítra skipta um eigendur

Markaður með greiðslumark í mjólk var haldinn 1. nóvember síðastliðinn. Matvælaráðuneytinu bárust 64 gild tilboð um kaup og sölutilboð voru 19. Í gildi er ákvörðun ráðherra um að hámarksverð skuli vera þrefalt afurðastöðvaverð, sem við lok tilboðsfrests var 351 kr. fyrir hvern lítra. Við opnun tilboða kom fram jafnvægisverð sem er jafnt hámarksverði. Boðið var…Lesa meira

true

Boða til kynningarfundar um skipulag fyrir Garðabraut 1 á Akranesi

Akraneskaupstaður kynnir nú vinnslutillögu að deiliskipulagi Garðabrautar 1. Boðað hefur verið til fundar mánudaginn 7. nóvember klukkan 17 á bæjarskrifstofunum við Dalbraut 4 en fundurinn verður jaframt í streymi í gegnum TEAMS. Hlekk á streymið má nálgast á FB síðu Akraneskaupstaðar. Fundurinn verður tekinn upp og gerður aðgengilegur á vefsíðu kaupstaðarins að honum loknum. Hægt verður…Lesa meira

true

Helena ráðin framkvæmdastjóri badmintonfélagsins

Badmintonfélag Akraness hefur ráðið Helenu Rúnarsdóttir sem framkvæmdastjóra félagsins. Helena þekkir vel til félagins enda æfði hún badminton frá 11-19 ára aldri. Einnig hefur hún verið yfirþjálfari félagins síðan 2019. Helena er með BSc í íþróttafræði og með MEd í íþróttafræði með áherslu á heilsuþjálfun og kennslu. Hún er að kenna íþróttir í Grundaskóla og…Lesa meira

true

Grái herinn tapaði skerðingamálunum í Hæstarétti

Hæstiréttur kvað í dag upp dóm í þremur skerðingarmálum sem einstaklingar höfðuðu fyrir hönd Gráa hersins gegn ríkinu. Hæstiréttur staðfesti dóma Héraðsdóms í málunum, en í héraði var ríkið sýknað af kröfum þremenninganna. Héraðsdómur taldi að lífeyrisrétturinn í almannatryggingakerfinu væri stjórnarskrárvarinn en gerði ekki athugasemdir við fyrirkomulagið sem ríkið notar við greiðslur ellilífeyris. Það gerir…Lesa meira

true

„Þetta er verkið sem allir elska“

Rætt við Hilmar Örn organista og kórstjóra á Akranesi Laugardaginn 5. nóvember verður eitt fegursta verk tónbókmenntanna flutt í Hafbjargarhúsinu á Breið á Akranesi. Það er verkið Sálumessa (Requiem) eftir Gabriel Fauré. „Alla kóra og alla kórstjóra dreymir um að gera þetta verk,“ segir Hilmar Örn Agnarsson organisti og kórstjóri Akraneskirkju í samtali við Skessuhorn.…Lesa meira

true

Myndasyrpa úr morgunstund Brekkubæjarskóla

Morgunstund í Brekkubæjarskóla Morgunstund var haldin í Brekkubæjarskóla á Akranesi síðastliðinn föstudagsmorgun og var hún tileinkuð 80 ára afmæli Akraneskaupstaðar. Þar voru á boðstólum atriði frá nemendum skólans og stóðu þeir sig allir með mikilli prýði. Þá voru veittar viðurkenningar til nemenda úr öllum bekkjum fyrir að standa sig vel í félagshæfni í skólanum. Morgunstundin…Lesa meira

true

Matvælastofnun svarar spurningum um dýravelferðarmál

Matvælastofnun er eins og kunnugt er opinber eftirlitsaðili með dýravelferð hér á landi. Í tilkynningu frá stofnuninni segir að undanfarið hafi MAST fengið nokkrar spurningar frá fjölmiðlum varðandi aðgerðir þegar lög og reglugerðir á sviði dýravelferðarmála eru brotin. Til glöggvunar eru hér birt svör Matvælastofnunar við spurningum fréttamanns Ríkisútvarpsins: 1) Hvað þarf til að skepnur séu…Lesa meira

true

Teknir í símanum við akstur

Síðasta miðvikudag var ökumaður í Stykkishólmi stöðvaður af lögreglu þar sem hann var að tala í símann við akstur. Daginn eftir um miðjan dag var ökumaður á Akrafjallsvegi tekinn við sömu iðju. Að sögn Lögreglunnar á Vesturlandi eiga þessir ökumenn von á 40 þúsund króna sekt fyrir símaspjallið.Lesa meira

true

Bæjarstjórn vill tryggja fyrirsjáanleika í ferjusiglingum

Á fundi í bæjarstjórn Stykkishólmsbæjar og Helgafellssveitar síðastliðinn fimmtudag var samþykkt ályktun vegna Breiðafjarðarferjunnar Baldurs. Þar var lagt fram svarbréf Vegagerðarinnar við fyrirspurn frá 2. fundi bæjarráðs varðandi framgang og stöðu mála vegna Breiðafjarðarferjunnar Baldurs. Bæjarstjórn fagnaði því að Vegagerðin hefur formlega auglýst eftir nýrri ferju sem nota eigi til siglinga yfir Breiðafjörð á meðan…Lesa meira

true

Hrekkjavaka í Stykkishólmi í kvöld

Foreldrafélag Grunnskólans í Stykkishólmi stendur fyrir hrekkjavökugöngu og opnun á Húsi hinna framliðnu (Haunted house) fyrir þá sem þora í dag, miðvikudaginn 2. nóvember. Verkefnið vinnur foreldrafélagið í samstarfi við ungmenni í félagsmiðstöðinni og Norska húsið. Hrekkjavaka nefnist á enskri tungu Halloween sem er stytting á All Hallows’ Evening sem er kvöldið 31. október, vakan…Lesa meira