Fréttir

true

Sala Neyðarkallsins hefst á morgun

Sala á Neyðarkalli björgunarsveitanna mun standa yfir dagana 3. – 6. nóvember um land allt. Salan er ein af megin fjáröflunarleiðum björgunarsveitanna til að standa straum af starfi sínu.Lesa meira

true

Staðsetning ákveðin fyrir grenndarstöðvar

Á fundi skipulags- og umhverfisráðs Akraneskaupstaðar síðastliðinn mánudag samþykkti ráðið staðsetningu grenndarstöðva á Akranesi. Eins og fram hefur komið í Skessuhorni mun sorpflokkun og móttaka breytast um næstu áramót þegar nýjar reglur taka gildi. Grenndarstöðvar verða við Vesturgötu 27, Dalbraut 1, bílastæði við Jörundarholt og í framhaldinu verður horft til fleiri staðsetninga. Horft verði til…Lesa meira

true

Hrekkjavökuskemmtun í Brekkó

Foreldrar í 2. bekk í Brekkubæjarskóla á Akranesi tóku sig til síðasta föstudag og héldu hrekkjavökuskemmtun fyrir börnin sín í skólanum. Allir mættu í búning og dönsuðu börn og foreldrar saman af miklum móð. Að sögn Tinnu Steindórsdóttur kennara, sem sendi Skessuhorni myndina af skemmtuninni, er þetta ótrúlega öflugur og góður foreldrahópur.Lesa meira

true

Götulýsing á Akranesi tekur breytingum á næstunni

Götulýsing á Akranesi kemur til með að taka breytingum á næstu árum og nýir þjónustuaðilar taka við. Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri Akraness segir í spjalli við Skessuhorn að ákvörðunin hafi verið tekin áður en Orka náttúrunnar ákvað að selja götulýsingarþjónustu sína en ON hefur annast götulýsingu Reykjavíkur, Mosfellsbæjar, Seltjarnarness og Akraness um árabil. Akraneskaupstaður sagði…Lesa meira

true

Barnaóperusýning fyrir leikskólabörn í Borgarbyggð

Öll börn í elstu árgöngum leikskólanna í Borgarbyggð fengu síðastliðinn mánudag, með samhentu átaki allra leikskólanna, tækifæri til að sjá og taka þátt í draumkenndu sýningunni Bárur. Sýningin er hluti af Óperudögum 2022. Fyrri sýningin fór fram í hlýlegum sal á Hnoðrabóli á Kleppjárnsreykjum og þangað komu börn frá Andabæ og Hraunborg. Seinni sýningin var…Lesa meira

true

Bið eftir spennistöðvum

Í sumar var hafist handa við að koma á þriggja fasa rafmagni á hluta Fellsstrandar í Dalabyggð, frá Skerðingsstöðum að Lyngbrekku. Rarik hefur plægt niður 42 km háspennustreng og er tengivinna í gangi en þetta er eitt af þeim flýtiverkefnum sem styrkt er af ríkisstjórninni vegna þrífösunar. Hins vegar er svo komið að töf er…Lesa meira

true

Starfsfólki ekki heimilt að tjá sig um tiltekin mál

Eitt af kjarnaverkefnum Matvælastofnunar (MAST) er að gæta að dýravelferð og er því verkefni sinnt af heilindum og forgangi. Í tilkynningu frá stofnuninni segir að á undanförnu hafi mikið verið rætt um velferð dýra á tilteknum bæ í Borgarfirði og um meint aðgerðaleysi MAST í því máli. „MAST er ekki heimilt að tjá sig um…Lesa meira

true

Eyþór Aron og Bryndís Rún valin best

Knattspyrnufélag ÍA hélt lokahóf sitt síðasta laugardag þar sem leikmönnum félagsins í meistaraflokki karla og kvenna voru veitt verðlaun fyrir tímabilið. Í meistaraflokki kvenna var Bryndís Rún Þórólfsdóttir valin besti leikmaðurinn og Sunna Rún Sigurðardóttir valin efnilegust. Karlamegin var Eyþór Aron Wöhler valinn bestur og Haukur Andri Haraldsson efnilegastur.Lesa meira

true

Stáli og brunnum bílhræjum skipað út

Í byrjun vikunnar var unnið við að lesta brotamálm frá Málmu um borð í Nordford í Akraneshöfn. Alls munu þetta verða um 2.300 tonn sem fara til endurvinnslu í Belgíu. Í þessum farmi verða m.a. bílhræin sem urðu brunanum að bráð á endurvinnslusvæðinu við Höfðasel í vikunni sem leið.Lesa meira

true

Barnasýningin Tindátarnir verður á Bókasafni Akraness í dag – tónlist eftir Soffíu Björg

Komedíuleikhúsið sýnir sýninguna Tindátarnir á Bókasafni Akraness kl. 17:30 í dag. Sýningin er byggð á ljóðabókinni Tindátarnir eftir Stein Steinarr og er sett upp í skuggaleikhúsformi. Sýningin er ætluð börnum á yngsta stigi leikskóla upp í eldri stig grunnskóla. Soffía Björg Óðinsdóttir, tónlistarkona frá Einarsnesi í Borgarfirði, semur tónlistina við verkið. Sýningin hefur verið sýnd…Lesa meira