Fréttir

true

Guðjón Þórðarson ekki áfram hjá Víkingi Ólafsvík

Stjórn knattspyrnudeildar Víkings Ólafsvíkur hefur ákveðið að endurnýja ekki samning sinn við Guðjón Þórðarson um áframhaldandi samstarf og mun Guðjón því ekki halda áfram sem þjálfari liðsins. Þetta kemur fram í tilkynningu sem félagið sendi frá sér í hádeginu. „Guðjón hefur í tvígang tekið við liðinu á erfiðum tímapunkti og unnið ákaflega gott starf í…Lesa meira

true

Útskipun á járni til Hollands

Þessa dagana stendur yfir útskipun á járni í Akraneshöfn sem safnað hefur verið á athafnasvæði Gámu á Akranesi síðustu mánuði. Það er Málmaendurvinnslan ehf. sem stendur að verkefninu en Terra umhverfisþjónusta aðstoðar við flutninga. Með því að safna járninu á Akranesi og skipa því beint út minnkar kolefnisspor járnaflutninga umtalsvert en um er að ræða…Lesa meira

true

Stórsigur hjá Skagakonum í síðasta leik sumarsins

ÍA og KH kepptu á laugardaginn í síðustu umferðinni í úrslitakeppni efri hluta 2. deildar kvenna í knattspyrnu og vegna slæmrar veðurspár fór leikurinn fram í Akraneshöllinni. Leikurinn var varla hafinn þegar Skagakonur voru komnar yfir í leiknum. Samira Suleman fékk þá sendingu yfir vörn KH, skaut að marki sem markvörðurinn varði en Samira náði…Lesa meira

true

Nýtt frumvarp bannar yngri en 13 ára að aka rafhlaupahjólum

Drög að frumvarpi um breytingar á umferðarlögum hafa verið birt í samráðsgátt stjórnvalda til umsagnar. Allir hafa tækifæri til að senda inn umsögn eða ábendingar til og með 6. október nk. Í frumvarpsdrögunum eru ýmis ný ákvæði sem hafa það markmið að auka öryggi vegfarenda á smáfarartækjum í umferðinni en nýta jafnframt kosti þeirra. Breytingarnar…Lesa meira

true

Ný stjórn FKA á Vesturlandi

Aðalfundur Vesturlandsdeildar Félags kvenna í atvinnulífinu var haldinn 22. september hjá Ingibjörgu fráfarandi stjórnarkonu sem á og rekur Ritara.is við Kirkjubraut á Akranesi. Einnig var hlekkur sendur á félagsmenn í deildinni svo að konur nær og fjær gætu tekið þátt þrátt fyrir að geta ekki mætt í eigin persónu. Anna stjórnarkona og samskiptatengill var með…Lesa meira

true

Norræn ráðstefna fer fram í Reykholti í vikunni

„Á slóðum endurreisnarinnar“ (Renaissance Itineraries) er fimmta ráðstefna Norræna tengslanetsins um endurreisnarfræði sem haldin verður í Snorrastofu í Reykholti. Fer hún fram dagana 28. – 30. september. „Frá lokum miðalda og fram eftir nýöld urðu afgerandi breytingar á evrópskri menningu með gríðarlegum landafundum og vísinda- og tækninýjungum af ýmsu tagi sem umbyltu heimsmynd álfunnar. Við…Lesa meira

true

Fjölmenn flugslysaæfing var haldin á Ísafirði

Um 200 manns tóku þátt í flugslysaæfingu Almannavarna og Isavia á Ísafjarðarflugvelli síðastliðinn laugardag. Þar voru æfð viðbrögð við flugslysi á eða við flugvöllinn. Að þessu sinni byggði æfingin á því að flugvél með 29 farþega og áhöfn um borð hefði farist. Viðbragðsaðilar Ísafjarðarbæjar og nærliggjandi byggðarlögum tóku þátt í æfingunni. Aðgerðarstjórn var virkjuð á…Lesa meira

true

Birkifræsöfnun hafin

Landsátak Skógræktarinnar og Landgræðslunnar í söfnun á birkifræi hófst formlega í Garðsárreit í Eyjafjarðarsveit síðastliðinn fimmtudag. Um fimmtíu manns, fólk á öllum aldri, kom til að tína fræ og njóta útiveru í skóginum. Alls safnaðist um ein og hálf milljón birkifræja í góðri stemmningu og góðu haustveðri, segir í tilkynningu frá Skógræktinni og Landgræðslunni. Átakið…Lesa meira

true

Heilsuvika hefst í dag í fjölbraut á Akranesi

Fjölbrautaskóli Vesturlands er heilsueflandi framhaldsskóli sem leggur sitt af mörkum með heilsueflandi samfélagi á Akranesi öllum til heilla. Í skólanum starfar öflugt teymi sem drífur starfsfólk og nemendur áfram í hreyfingu, útivist og hollu mataræði og hlustar ekki á neitt væl. Nýlega var gerð heilsufarsmæling á vegum Vinnuverndar meðal starfsfólks í skólanum. Alls tóku 35…Lesa meira

true

,,Ég er svo heppin að eiga einn engil á himni og annan á jörðu“

Ásta Marý missti langveikan son sinn fjögurra mánaða gamlan en fæddi sitt annað barn í ágúst síðastliðnum með aðstoð „undirverktakans Marty“ sem er danskur sæðisgjafi. Ásta Marý Stefánsdóttir er uppalin í Skipanesi í Hvalfjarðarsveit. Hún er vélvirki, söngkona og hestakona ásamt fleiru en leggur nú stund á nám í hjúkrunarfræði. Ásta er tveggja barna móðir…Lesa meira