{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Fjölbrautaskóli Vesturlands er heilsueflandi framhaldsskóli sem leggur sitt af mörkum með heilsueflandi samfélagi á Akranesi öllum til heilla. Í skólanum starfar öflugt teymi sem drífur starfsfólk og nemendur áfram í hreyfingu, útivist og hollu mataræði og hlustar ekki á neitt væl.\r\n\r\nNýlega var gerð heilsufarsmæling á vegum Vinnuverndar meðal starfsfólks í skólanum. Alls tóku 35 þátt og fengu leiðsögn og ráð um holla og streituminni lífshætti. Á hverjum morgni er í boði hafragrautur í skólanum og hádegisverður er fjölbreyttur og hollur þótt við leyfum okkur alltaf ís á miðvikudögum.\r\n\r\nÍþrótta- og hreyfivika er nú haldin í yfir 30 Evrópulöndum. Af því tilefni hlaut skólinn rausnarlegan styrk frá ÍSÍ sem verður nýttur í Heilsuviku í skólanum, 26.-30. september. Meðal viðburða er Westside, íþróttakeppnin mikla sem NFFA skipuleggur en þar leiða FVA, FSN og MB saman hesta sína í ýmsum íþróttagreinum. Hún hefst kl 15:30 fimmtudaginn 29. september. Síðan er stiginn dans um kvöldið á Gamla Kaupfélaginu í sátt og samlyndi.\r\n\r\nMeðal þess sem er á dagskrá í FVA í Heilsuvikunni er róðrakeppni á sal þar sem engin miskunn er sýnd, þar keppa starfsfólk vs. nemendur. Svo er fjallganga á Akrafjallið góða og Esjuna, með blóðbragð í munni og svitadropar munu falla. Þá er í boði kajakróður, núvitund og fimleikakvöld; við getum öll fundið okkur hreyfingu við hæfi þessa vikuna. Einnig eru hörkuspennandi undanúrslit í fótbolta, Winter Cup, í Íþróttahúsinu á Jaðarsbökkum, þar sem hætt er við að raddbönd verði þanin og hásinar slitni.\r\n\r\nFarið verður í ratleik úti undir berum himni, sem heilsueflingarteymið skipuleggur í samstarfi við Viskuklúbb og íþróttaklúbb NFFA. Verðlaun í boði fyrir besta liðið. Söguganga verður farin með Leó kennara um Garðasvæðið og skógræktirnar og svo skellum við okkur í sjósund og göngu um Kalmansvík. Í gangi er 30/30 áskorun hjá starfsfólki skólans þessa dagana, þ.e. að hreyfa sig í a.m.k. 30 mín á dag í 30 daga. Við notum myllumerkin #BeActive og BeActive Iceland í Heilsuvikunni.\r\n\r\nFimmtudaginn 29. september er fyrirlestur fyrir nemendur og starfsfólk með Ingibjörgu Rögnu Malmquist, sálfræðingi hjá Betri svefn en mikilvægi svefns er aldrei nógu oft ítrekað. Það er frítt í sund fyrir nemendur og starfsfólk alla Heilsuvikuna.\r\n\r\nDagskrá heilsuvikunnar má sjá á vef skólans.\r\n\r\n<em>-fréttatilkynning</em>",
"innerBlocks": []
}
Heilsuvika hefst í dag í fjölbraut á Akranesi - Skessuhorn