Fréttir

true

Atvinnuleysi í lágmarki um þessar mundir

Atvinnuleysi á Íslandi er lágt í sögulegu samhengi vegna kraftmikillar fjölgunar starfa að undanförnu. Þetta kom fram í kynningu Bjarna Benediktssonar, fjármála- og efnahagsráðherra, á fjárlagafrumvarpi ársins 2023 á dögunum. Ráðherra benti á að atvinnustigið hefði batnað mjög á Íslandi að undanförnu, en á einu ári hafa um 13.000 störf skapast. „Við sjáum hvernig atvinnuleysi er nú…Lesa meira

true

Rafmagnstruflanir á nokkrum stöðum

Um klukkan 20 í gær fór rafmagn af línunni frá Mýrum að Hítardal en viðgerð lauk um klukkan 4 í nótt. Nú er rafmagnsbilun á línunni frá Vatnshömrum í Andakíl að Seleyri og verið er að leita að bilun. Loks er rafmagnsbilun á Skógarströnd í Dölum, staur við Dunká er brotinn. Unnið er að viðgerð…Lesa meira

true

Spáð er suðvestan hvassviðri eða stormi á laugardagskvöld

Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun vegna veðurs á laugardagskvöldið. Er viðvörun í gildi fyrir mestallt landið. Á spásvæðinu Faxaflóa verður suðvestan 15-23 m/s og vindhviður víða yfir 30 m/s frá því um klukkan 21 og til morguns. Á Breiðafjarðarsvæðinu er varað við veðri frá klukkan 18 á laugardag og til sunnudagsmorguns. Þar verður einnig…Lesa meira

true

Mikið um að vera hjá Skotfélagi Snæfellsness

Félagsmenn hjá Skotfélagi Snæfellsness hafa heldur betur verið með ermarnar upp brettar undanfarin misseri. Nýjasta viðbót við aðstöðu hjá félaginu er 75 fermetra skothús sem hefur risið á svæði félagsins í Kolgrafafirði. Skothúsið er af fullkomnustu gerð með ellefu skotlúgum og þar af eru fimm skotlúgur hugsaðar fyrir skotfólk í hjólastólum. Jón Pétur Pétursson er…Lesa meira

true

Fyrirtækjakönnun landshlutanna gefin út

Í liðinni viku var fyrirtækjakönnun landshlutanna gefin út fyrir árið 2022. Hún var framkvæmd á fyrri hluta ársins, í mánuðunum janúar til mars. Rúmlega 1600 fyrirtæki tóku þátt, þar af tæplega 200 af Vesturlandi. Könnunin var síðast framkvæmd haustið 2019 og svipaður fjöldi fyrirtækja tók þá þátt. Glæður eru fréttabréf SSV sem Vífill Karlsson hagfræðingur…Lesa meira

true

Bjössi Lú byrjaður á sínu vegglistaverki

Listamaðurinn Björn Lúðvíksson, eða Bjössi Lú eins og hann kýs að kalla sig, vakti mikla athygli fyrir rúmum fimm árum þegar hann málaði Bowie vegginn við Kirkjubraut á Akranesi. Nýjasta verkefni hans verður að finna á vegg við Gamla Kaupfélagið en þar byrjaði hann í síðustu viku að mála vegg sem inniheldur að einhverju leyti…Lesa meira

true

Samevrópsk íþrótta- og hreyfivika í gangi

Íþrótta- og hreyfivika Evrópu (European Week of Sport) er haldin 23. til 30. september ár hvert í yfir 30 Evrópulöndum. Evrópubúar sameinast í vikunni undir slagorðinu #BeActive. Skipulagðir viðburðir eru í a.m.k. fjórum sveitarfélögum á Vesturlandi, tileinkaðir vikunni, þ.e. á Akranesi, Stykkishólmi, Grundarfirði og í Snæfellsbæ. Heilsueflandi samfélag á Akranesi í samstarfi við ÍA leggur…Lesa meira

true

Hlutu heiðursviðurkenningu fyrir langa setu í sveitarstjórnum

Á haustþingi Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi, sem lauk í gær, voru nokkrir sveitarstjórnarfulltrúar heiðraðir fyrir langa setu í sveitarstjórnum. Fjórir fengu viðurkenninguna í ár en það voru þeir Finnbogi Leifsson, sem setið hefur í sveitarstjórn samfleytt í 37 ár, síðari hluta þess tíma fyrir Borgarbyggð. Halldór Jónsson hefur starfað í sveitarstjórn Eyja- og Miklaholtshrepps í…Lesa meira

true

Þórsnesþing, Stykkishólmsbær eða Sveitarfélagið Stykkishólmur

Eins og greint var frá í síðasta tölublaði Skessuhorns óskaði sameinað sveitarfélag Helgafellssveitar og Stykkishólmsbæjar í byrjun júlí eftir eftir því við Örnefnanefnd að hún tæki til umsagnar tillögur að nafni á hið sameinaða sveitarfélag. Auglýst var eftir tillögum að nafni og rann út frestur til að skila inn tillögum 1. júní. Alls bárust 72…Lesa meira

true

Níðið um Snorra á fyrirlestri í Snorrastofu

Þriðjudaginn 27. september kl. 20 flytur Úlfar Bragason, prófessor eremitus, fyrirlestur í Snorrastofu í Reykholti, sem ber yfirskriftina; „Harðmúlaðr er Skúli: Níðið um Snorra“. Fyrirlesturinn, sem er hluti af fyrirlestraröðinni „Minningarfyrirlestur um Snorra Sturluson,“ er öllum opinn og er aðgangur ókeypis. Snorri Sturluson var í Noregi á árunum 1218–1220 eftir því sem Íslendinga saga Sturlu…Lesa meira