Bjarni Benediktsson kynnir fjárlagafrumvarp ársins 2023. Ljósm. Stjórnarráðið.

Atvinnuleysi í lágmarki um þessar mundir

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Atvinnuleysi á Íslandi er lágt í sögulegu samhengi vegna kraftmikillar fjölgunar starfa að undanförnu. Þetta kom fram í kynningu Bjarna Benediktssonar, fjármála- og efnahagsráðherra, á <a href=\"https://www.stjornarradid.is/fjarlog2023\">fjárlagafrumvarpi ársins 2023</a> á dögunum. Ráðherra benti á að atvinnustigið hefði batnað mjög á Íslandi að undanförnu, en á einu ári hafa um 13.000 störf skapast. „Við sjáum hvernig atvinnuleysi er nú orðið á pari eða jafnvel ívið betra en það var fyrir heimsfaraldurinn. Þetta eru tölur sem eru algjör umbylting á atvinnuástandi,“ sagði ráðherra.\r\n\r\nÍ fjárlagafrumvarpinu kemur fram að fækkun starfa í faraldrinum hefur að fullu gengið til baka en störf hafa flust milli atvinnugreina. Störf í ferðaþjónustu eru aftur orðin jafn mörg og fyrir faraldurinn.\r\n\r\n<img src=\"https://www.stjornarradid.is/library/01--Frettatengt---myndir-og-skrar/FJR/atvleysi.png?proc=LargeImage\" alt=\"Úr kynningu fjárlagafrumvarps fyrir árið 2023\" />\r\n\r\n<strong>50 milljörðum króna lægri útgjöld til atvinnuleysisbóta</strong>\r\n\r\nMinna atvinnuleysi frá því sem var í faraldrinum hefur mikil áhrif á ríkissjóð en útgjöld vegna almennra atvinnuleysisbóta eru áætluð nærri 50 ma.kr. minni árið 2023 en 2021 á föstu verðlagi. „Þegar atvinnuleysi lækkar þá þarf minna að greiða út af atvinnuleysisbótum og fleiri taka þátt í að greiða staðgreiðslu og tryggingagjaldið tekur við sér, sem er einn lykilskattstofn ríkisins,“ sagði ráðherra við kynningu fjárlagafrumvarps.",
  "innerBlocks": []
}
Atvinnuleysi í lágmarki um þessar mundir - Skessuhorn