
Stykkishólmur. Ljósm. gj
Þórsnesþing, Stykkishólmsbær eða Sveitarfélagið Stykkishólmur
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Eins og greint var frá í síðasta tölublaði Skessuhorns óskaði sameinað sveitarfélag Helgafellssveitar og Stykkishólmsbæjar í byrjun júlí eftir eftir því við Örnefnanefnd að hún tæki til umsagnar tillögur að nafni á hið sameinaða sveitarfélag. Auglýst var eftir tillögum að nafni og rann út frestur til að skila inn tillögum 1. júní. Alls bárust 72 tillögur að nafni. Sveitarstjórn fór yfir tillögurnar og ákvað að óska eftir umsögn örnefnanefndar. Af þeim nöfnum sem örnefnanefnd fékk til umsagnar telur hún nöfnin Þórsnesþing, Stykkishólmsbær og Sveitarfélagið Stykkishólmur falla best að nafngiftahefð í landinu. Nefndin er einnig meðmælt því að kenna nýsameinað sveitarfélag við Helgafell en telur ekki fara vel á því að nota eftirliðinn -sveit. Nefndin leggst hins vegar gegn nöfnunum Stykkishólmsbær og Helgafellssveit, Stykkishólmur og Helgafellssveit, Breiðafjarðarbær og Breiðafjarðarbyggð.\r\n\r\nÁ fundi bæjarráðs Stykkishólmsbæjar og Helgafellssveitar 15. september sl. var samþykkt að boða til íbúafundar vegna nafns á nýja sveitarfélagið. Á honum verður kynnt greinargerð Örnefnanefndar og boðið til samtals um niðurstöðu nefndarinnar og fyrirliggjandi tillögur.",
"innerBlocks": []
}