Efnilegur ungur fræsafnari, kampakátur með frærekil. Ljósmynd: Pétur Halldórsson

Birkifræsöfnun hafin

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Landsátak Skógræktarinnar og Landgræðslunnar í söfnun á birkifræi hófst formlega í Garðsárreit í Eyjafjarðarsveit síðastliðinn fimmtudag. Um fimmtíu manns, fólk á öllum aldri, kom til að tína fræ og njóta útiveru í skóginum. Alls safnaðist um ein og hálf milljón birkifræja í góðri stemmningu og góðu haustveðri, segir í tilkynningu frá Skógræktinni og Landgræðslunni.\r\n\r\nÁtakið fer nú fram í þriðja sinn í samvinnu við fyrirtæki, félög og einstaklinga um allt land. Með átakinu vilja Skógræktin og Landgræðslan virkja landsmenn til þátttöku í því markmiði stjórnvalda að breiða birkiskóglendi út á fimm prósent landsins fyrir 2030 en núverandi útbreiðsla er 1,5%. „Mikilvægt er að ná góðu sambandi við ýmis félög um allt land, ekki síst skógræktarfélögin sem eru um sextíu talsins og hafa innan sinna raða um átta þúsund félagsmenn.“",
  "innerBlocks": []
}
Birkifræsöfnun hafin - Skessuhorn