Fréttir

true

Skólasetning Brekkubæjarskóla á Akranesi verður mánudaginn 22. ágúst

Brekkubæjarskóli verður settur mánudaginn 22. ágúst kl. 10 og hefst kennsla samkvæmt stundaskrá daginn eftir, þriðjudaginn 23. ágúst. Nemendur skólans eru 474 þennan veturinn og er svipaður fjöldi og verið hefur. Búið er að manna í allar kennarastöður við skólann og gekk það vel. Starfsfólkið er spennt fyrir komandi vetri án sóttvarnatakmarkana. „Já, við erum…Lesa meira

true

Heiðarskóli í Hvalfjarðarsveit verður settur mánudaginn 22. ágúst

Skólasetning í Heiðarskóla verður mánudaginn 22. ágúst kl. 16 og hefst kennsla samkvæmt stundaskrá daginn eftir, þriðjudaginn 23. ágúst. Í vetur verða í skólanum ríflega 90 nemendur sem er smávægileg fjölgun frá síðasta ári. Í skólanum er þriðji bekkur fjölmennastur, í honum eru 16 börn eða tæplega 18% af nemendum skólans. Fámennastur er annar bekkur…Lesa meira

true

Grunnskóli Borgarfjarðar hefst með skólasetningu mánudaginn 22. ágúst

Grunnskóli Borgarfjarðar verður settur mánudaginn 22. ágúst; á Hvanneyri kl. 10, á Kleppjárnsreykjum kl. 12 og á Varmalandi kl. 14. Kennsla hefst á öllum starfsstöðvum skv. stundaskrá degi síðar. Alls verða 167 nemendur við grunnskólann í vetur. Á Hvanneyri er kennt í 1.-5. bekk og þar verða 30 nemendur, á Kleppjárnsreykjum eru 95 nemendur í…Lesa meira

true

Skólasetning í Grunnskólanum í Borgarnesi mánudaginn 22. ágúst

Setningarathöfn Grunnskólans í Borgarnesi verður í íþróttahúsinu í Borgarnesi klukkan 10, mánudaginn 22. ágúst, og hefst hefðbundin kennsla degi síðar skv. stundaskrá. Enn eru hreyfingar á nemendafjölda skólans en endanlegur fjöldi verður öðru hvorum megin við 300. Búið er að manna í allar stöður við skólann en töluverðar hreyfingar eru á starfsliðinu. Í skólanum starfa…Lesa meira

true

Anna Margrét Tómasdóttir nýr skólastjóri Reykhólaskóla

Anna Margrét Tómasdóttir hefur verið ráðin sem skólastjóri Reykhólaskóla á Reykhólum. Anna Margrét var forstöðumaður í Ungmennabúðum UMFÍ á Laugum í Sælingsdal frá stofnun þeirra árið 2005 og allt þar til þær lokuðu vorið 2019. Ungmennabúðirnar voru þá um haustið opnaðar á Laugarvatni og Anna Margrét var forstöðumaður þar fram í júní á síðasta ári.…Lesa meira

true

Skagakonur fóru á kostum á móti Hamri

ÍA og Hamar áttust við í gærkvöldi í 2. deild kvenna í knattspyrnu og var leikurinn á Akranesvelli. Það má með sanni segja að Skagakonur hafi verið á eldi í leiknum því þær skoruðu alls ellefu mörk í öllum regnbogans litum, lokatölur 11-0 fyrir ÍA. Fjörið hófst strax á þriðju mínútu þegar Marey Edda Helgadóttir…Lesa meira

true

Grunnskóli Grundarfjarðar verður settur á föstudag

Föstudaginn 19. ágúst verður grunnskólinn settur í Grundarfirði og hefst kennsla samkvæmt stundaskrá á mánudagsmorgun 22. ágúst. Rétt rúmlega 100 börn eru skráð í skólann þennan veturinn og er það örlítil fjölgun frá því í fyrra. Vel gekk að manna í þær stöður sem auglýstar voru og er Sigurður Gísli Guðjónsson, skólastjóri, ánægður með sitt…Lesa meira

true

Gera upp bíl fyrir æfingaakstur

Kristinn Óli Sigurðsson á Akranesi, alltaf kallaður Kiddi, er nýorðinn 15 ára og vinnur nú að því ásamt pabba sínum að standsetja bíl sem hann ætlar að nota sem æfingaakstursbíl þegar hann verður 16 ára í ágúst á næsta ári. Bíllinn er af gerðinni Corvette, árgerð 1980 og er fallega appelsínugulur á litinn. Kiddi á…Lesa meira

true

Opið Íþróttamót Dreyra fór fram í blíðviðri

Síðastliðna helgi fór fram opið Íþróttamót hjá hestamannafélaginu Dreyra. Alls komu 140 skráningar á mótið sem fór fram á blíðviðrisdegi. Mótið gekk vel að sögn mótsnefndar og gengu keppendur sáttir frá vel heppnuðu móti. Mótsnefnd vill koma á framfæri þökkum fyrir frábært mót auk sérstakra þakka til styrktaraðila.  Helstu styrktaraðilar mótsins eru Íslandsbanki, Landsbankinn, Sjóvá,…Lesa meira

true

Færir ráðuneyti sitt tímabundið í Snæfellsbæ á morgun

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, mun nú í vikunni færa skrifstofu sína tímabundið í Snæfellsbæ og vinna þaðan. Áslaug Arna ákvað síðastliðið haust, þegar hún tók við þessu nýja ráðuneyti, að það yrði vinnustaður án staðsetningar og með því að færa sig sjálf um set vill hún sýna fram á hversu gerlegt það…Lesa meira