Fréttir

true

Víkingur Ó og Þróttur R gerðu jafntefli í markaleik

Víkingur Ólafsvík tók á móti Þrótti Reykjavík í 2. deild karla í knattspyrnu í gærkvöldi og fór leikurinn fram á Ólafsvíkurvelli. Þróttur er í öðru sæti deildarinnar í mikilli baráttu við Völsung um að komast upp með Njarðvík í Bestu deildina á meðan Víkingur er að gera sitt besta til að losna við falldrauginn. Þróttur…Lesa meira

true

Eini báturinn á makrílveiðum frá Ólafsvík

Báturinn Júlli Páls SH byrjaði nýverið makrílveiðar frá Ólafsvík. Hefur hann aflað ágætlega, eða upp í sex tonn yfir daginn. Var hann aflahæsti löndunarbáturinn í Ólafsvík í liðinni viku. Bárður Jóhönnuson skipstjóri segir að veiðarnar gangi þolanlega en það sé hins vegar erfitt að vera eini báturinn á þessum veiðum. Því þurfi að leita makrílinn…Lesa meira

true

Laugargerðisskóli hefst að morgni mánudagsins 22. ágúst

Engin eiginleg skólasetning er í Laugargerðisskóla en skólastarf hefst að morgni 22. ágúst. Nemendur mæta þá með skólabíl í skólann eins og aðra daga ársins en dagurinn verður styttri en á að venjast og óformlegri. Mikil breyting varð á starfsliði skólans nú í sumar. Þrjár kennarastöður eru við skólann og ráðnir voru inn nýir kennarar…Lesa meira

true

Lagareldi er nýyrði yfir eldi í vatni

Samkvæmt ákvörðun Svandísar Svavarsdóttur matvælaráðherra er hafin vinna við gerð skýrslu á stöðu lagareldis hér á landi. Lagareldi er nýyrði í málinu og verður yfirheiti yfir sjókvía-, land-, þörunga- og úthafseldi. Ljúka á við skýrsluna í nóvember á þessu ári. Að undangengnu útboði hefur matvælaráðuneytið samið við bandaríska ráðgjafafyrirtækið Boston Consulting Group Nordic AB um…Lesa meira

true

FISK Seafood gefur Háskólanum á Hólum húsnæði sitt í Hjaltadal

Gengið hefur verið frá samkomulagi á milli Háskólans á Hólum og FISK Seafood ehf. á Sauðárkróki um nýtt húsnæði fyrir Fiskeldis- og fiskalíffræðideild skólans. Starfsemin hefur um langt árabil verið rekin með stuðningi FISK Seafood í húsnæði félagsins á Sauðárkróki en mun á næsta ári færast í tæplega tvö þúsund fermetra í nágrenni skólans í…Lesa meira

true

Íslandsmót í hrútadómum verður á sunnudaginn

Átjánda Íslandsmótið í hrútadómum verður haldið á Sauðfjársetrinu í Sævangi á Ströndum sunnudaginn 21. ágúst næstkomandi og hefst kl. 14:00. „Þessari skemmtilegu keppni hefur verið aflýst tvö ár í röð vegna sóttvarnatakmarkana, en verður nú endurvakin,“ segir í tilkynningu. „Hrútaþuklið er stærsti viðburðurinn í starfi Sauðfjársetursins. Hingað hefur streymt fólk alls staðar að af landinu,…Lesa meira

true

Grunnskóli Snæfellsbæjar verður settur mánudaginn 22. ágúst

Skólasetning í Grunnskóla Snæfellsbæjar verður mánudaginn 22. ágúst og kennsla hefst samkvæmt stundaskrá strax daginn eftir, 23. ágúst. Nú eru skráðir í skólann um 220 nemendur sem deilast niður á þrjár starfsstöðvar. Í Ólafsvík verða nemendur í 6.-10. bekk, 114 talsins. Á Hellissandi eru 89 nemendur í 1.-5. bekk og í Lýsudeild skólans á Lýsuhóli…Lesa meira

true

Fyrsti skóladagur Reykhólaskóla er á mánudag

Reykhólaskóli hefst mánudaginn 22. ágúst með svokölluðum tvöföldum degi en þá er skólasetning og kennsla hefst svo í beinu framhaldi af henni. Í vetur eru 30 nemendur skráðir í grunnskólann og 12 börn eru í leikskóladeild skólans. Nýr skólastjóri var ráðinn í sumar og er það hún Anna Margrét Tómasdóttir, sem áður var forstöðumaður ungmennabúðanna…Lesa meira

true

Grundaskóli á Akranesi hefst á þriðjudag, 23. ágúst

Setningarathöfn Grundaskóla á Akranesi verður mánudaginn 22. ágúst og byrjar klukkan níu þegar fyrsti bekkur mætir, bekkirnir mæta svo hver af öðrum á hálftíma fresti til klukkan hálf tvö þegar tíundi og síðasti bekkurinn mætir. Börnin verða viðstödd litla athöfn á sal og fara svo í heimastofurnar sínar þar sem þau hitta kennara og fá…Lesa meira