Loftmynd af Ólafsvík í Snæfellsbæ en þar er ein þriggja starfsstöðva skólans

Grunnskóli Snæfellsbæjar verður settur mánudaginn 22. ágúst

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Skólasetning í Grunnskóla Snæfellsbæjar verður mánudaginn 22. ágúst og kennsla hefst samkvæmt stundaskrá strax daginn eftir, 23. ágúst. Nú eru skráðir í skólann um 220 nemendur sem deilast niður á þrjár starfsstöðvar. Í Ólafsvík verða nemendur í 6.-10. bekk, 114 talsins. Á Hellissandi eru 89 nemendur í 1.-5. bekk og í Lýsudeild skólans á Lýsuhóli í Staðarsveit eru 20 nemendur og er þar kennt í 1.-10. bekk.\r\n\r\nBúið er að manna í allar stöður í skólanum og er Hilmar Már Arason, skólastjóri, ánægður með hvernig til tókst. „Við auglýstum auðvitað allar lausar stöður, en staðan er bara sú að það er erfitt að fá menntaða kennara til starfa hér. Það má segja að við ölum upp okkar eigin kennara, við ráðum inn gott fólk og hvetjum það svo til að fara í kennaranám og svo þurfum við bara að vona að fólkið komi til baka til okkar að námi loknu.“\r\n\r\nHúsnæði skólans á Hellissandi hefur verið endurnýjað töluvert á síðustu mánuðum bæði að innan og utan. Enn er þó heilmikið eftir. „Það hefur reynst mjög erfitt að fá iðnaðarmenn og endurbæturnar við skólann stranda helst á því. Til að mynda stendur til að skipta út öllum gluggum í byggingunni. Það er búið að kaupa gluggana og þeir eru komnir en það fást ekki smiðir í vinnu við að setja þá í. Annars erum við mjög ánægð með þær framkvæmdir sem náðst hefur að klára og má þá helst nefna að aðgengi fyrir fatlaða að húsinu er orðið mjög gott, bæði er kominn rampur við húsið og rafmagnshurð.“\r\n\r\nUndanfarin ár hefur í skólanum verið lögð áhersla á átthagafræði, og verður svo áfram í vetur, og segir Hilmar að skólinn sé sá eini á landinu sem kenni það fag. Átthagafræði er fræðsla um grenndarsamfélagið og eru lykilþættirnir náttúra, landafræði og saga sveitarfélagsins.",
  "innerBlocks": []
}
Grunnskóli Snæfellsbæjar verður settur mánudaginn 22. ágúst - Skessuhorn