Fréttir

true

Varað við mikilli úrkomu á norðvestanverðu landinu

Spáð er norðlægri átt, 5-10 m/sek í dag, en 10-18 um landið vestanvert síðdegis, hvassast norðvestantil á landinu. Rigning með köflum á norðanverðu landinu, talsverð eða mikil norðvestantil, skúrir eystra, en annars úrkomuminna. Hiti 7 til 15 stig og svalast á Vestfjörðum. Á morgun, laugardag, verður norðan 5-15 m/sek, hvassast vestantil. Rigning norðantil, skúrir fyrir…Lesa meira

true

Byggðarráð ræddi mögulega staðsetningu nýs flugvallar á Mýrum

Á fundi byggðarráðs Borgarbyggðar í gær var til umfjöllunar möguleg uppbygging nýs flugvallar til stuðnings núverandi flugvöllum í landinu. Borgarbyggð hefur verið nefnd sem valkostur fyrir nýjan flugvöll og Mýrar nefndar sérstaklega í því sambandi. Þingkonan Halla Signý Kristjánsdóttir, sem sæti á í umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis, vakti máls á þessu fyrr í sumar. Horft…Lesa meira

true

Hjólreiðakeppnin Grefillinn um uppsveitir Borgarfjarðar

Hjólreiðadeild Breiðabliks stendur á morgun fyrir malarhjólreiðakeppninni Greflinum um uppsveitir Borgarfjarðar. Um 200 hjólarar munu taka þátt í keppninni. Keppnisleiðin verður m.a. frá Reykholtsdal, um Lundarreykjadal, Uxahryggi og Kaldadal og þaðan aftur í Reykholtsdalinn. Fyrirhuguð hjólaleið verður annars vegar 100 km og hins vegar 200 km. „Vel er þegið að fá stuðning frá vegfarendum, bæði…Lesa meira

true

Skógarstrandarvegur er forsenda samstarfs sveitarfélaga við Breiðafjörð

Sveitarstjórn Dalabyggðar ályktar um vegamál Sveitarstjórn Dalabyggðar fundaði í gær og samþykkti m.a. bókanir vegna vegamála. Þar segir að Skógarstrandarvegur, vegur 54 í vegakerfi Íslands, gegni lykilhlutverki í því að tengja saman Dali og Snæfellsnes. „Skógarstrandavegur er eini stofnvegur á Vesturlandi sem er án bundins slitlags og sá lengsti á láglendi landsins alls sem er…Lesa meira

true

Nýsköpun og sjálfbærni á Breiðinni

Næstkomandi, þriðjudag 23. ágúst, verður ráðstefna á Akranesi um nýsköpun og sjálfbærni. Það er Símenntunarmiðstöðin á Vesturlandi sem skipuleggur ráðstefnuna sem verður á Breiðinni og stendur yfir frá kl. 9 til 12. Yfirskriftin og þar með heiti ráðstefnunnar er Nýsköpun sem leið til sjálfbærni. Þar flytja erindi Kristinn Lár Hróbjartsson framkvæmdastjóri Running Tide á Íslandi,…Lesa meira

true

Útlit er fyrir lélega berjasprettu á Vesturlandi

Nú þegar komið er fram í miðjan ágúst eru margir sem gengið hafa til berja. Nú blasir við að berjaspretta þetta sumar er léleg í landshlutanum. Í maí var útlitið þó býsna gott og margir sætukoppar á berjalyngi sem bjuggu sig undir að breytast í safarík ber þegar liði á sumarið. Í júnímánuði gerði hins…Lesa meira

true

Beðið umsagnar um heiti nýs sameinaðs sveitarfélags

Fimmtán dögum eftir síðustu sveitarstjórnarkosningar varð til nýtt sveitarfélag á norðanverðu Snæfellsnesi, með sameiningu Stykkishólmsbæjar og Helgafellssveitar. Bæjarstjórn var kjörin fjórtánda maí og hefur hún nú sent átta tillögur að væntanlegu heiti sveitarfélagsins til Örnefnanefndar að undangenginni könnun meðal íbúa. Söfnun hugmynda um nafn sameinaðs sveitarfélags Stykkishólmsbæjar og Helgafellssveitar lauk 1. júní sl. með rafrænu…Lesa meira

true

Skólasetning í Auðarskóla í Búðardal er þriðjudaginn 23. ágúst

Skólasetning Auðarskóla í Dölum fer fram þriðjudaginn 23. ágúst og kennsla hefst samkvæmt stundaskrá morguninn eftir, miðvikudaginn 24. ágúst. Nemendur skólans verða 88 talsins í vetur og er það svipaður fjöldi og verið hefur. Herdís Erna Gunnarsdóttir er nýr skólastjóri Auðarskóla og hún segir að vel hafi gengið að manna starfslið skólans fyrir veturinn. „Það…Lesa meira

true

Grunnskólinn í Stykkishólmi verður settur miðvikudaginn 24. ágúst

Setningarathöfn Grunnskólans í Stykkishólmi fer fram miðvikudaginn 24. ágúst klukkan 10 fyrir 1.-7. bekk og klukkan 11 fyrir 8.-10. bekk. Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá daginn eftir, fimmtudaginn 25. ágúst. Vel hefur gengið að manna lausar stöður við skólann og er ráðningum lokið utan einnar stöðu sem enn er auglýst, það er staða kennara í list-…Lesa meira

true

Framhaldsskólarnir á Vesturlandi að hefja vetrarstarfið

Skólastarf er nú að hefjast um landsbyggðina alla en á Vesturlandi eru þrír framhaldsskólar, auk bændadeildarinnar við LbhÍ á Hvanneyri; Fjölbrautaskóli Snæfellinga í Grundarfirði, Fjölbrautaskóli Vesturlands á Akranesi og Menntaskóli Borgarfjarðar í Borgarnesi. Hefjast skólarnir allir nú í vikunni. Aðsókn í skólana er góð þetta haustið og talsverð nýsköpun í gangi hjá þeim. Skessuhorn tók…Lesa meira