Hjólreiðakeppnin Grefillinn um uppsveitir Borgarfjarðar
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Hjólreiðadeild Breiðabliks stendur á morgun fyrir malarhjólreiðakeppninni Greflinum um uppsveitir Borgarfjarðar. Um 200 hjólarar munu taka þátt í keppninni. Keppnisleiðin verður m.a. frá Reykholtsdal, um Lundarreykjadal, Uxahryggi og Kaldadal og þaðan aftur í Reykholtsdalinn. Fyrirhuguð hjólaleið verður annars vegar 100 km og hins vegar 200 km.\r\n\r\n„Vel er þegið að fá stuðning frá vegfarendum, bæði í formi hvatningar og tillitssemi. Viðburðurinn hefst kl. 7.00 frá Krauma í Reykholtsdal og er gert ráð fyrir að síðustu þátttakendur skili sér þangað aftur um kl. 20:00,“ segir í tilkynningu.",
"innerBlocks": []
}
Hjólreiðakeppnin Grefillinn um uppsveitir Borgarfjarðar - Skessuhorn