
Á Mýrum. Ljósm. Guðrún Jónsdóttir.
Byggðarráð ræddi mögulega staðsetningu nýs flugvallar á Mýrum
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Á fundi byggðarráðs Borgarbyggðar í gær var til umfjöllunar möguleg uppbygging nýs flugvallar til stuðnings núverandi flugvöllum í landinu. Borgarbyggð hefur verið nefnd sem valkostur fyrir nýjan flugvöll og Mýrar nefndar sérstaklega í því sambandi. Þingkonan Halla Signý Kristjánsdóttir, sem sæti á í umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis, vakti máls á þessu fyrr í sumar. Horft er til þess að finna nýjum flugvelli stað utan t.d. virkra eldgosasvæða.\r\n\r\nÍ ályktun byggðarráðs segir m.a: „Borgarbyggð er steinsnar frá höfuðborgarsvæðinu en liggur jafnframt á krossgötum milli landshluta. Samgöngur innan sveitarfélagsins og til höfuðborgarsvæðisins eru nær undantekningarlaust greiðar. Fyrirhugaðar þjóðhagslega hagkvæmar samgöngubætur á borð við Sundabraut munu stytta ferðatíma og auka öryggi enn frekar. Lega sveitarfélagsins hlýtur að kalla á að landsvæði í Borgarbyggð, t.d. Mýrar, verði tekin til ítarlegrar greiningar ef ákveðið verður að ráðast í umfangsmikla fjárfestingu í flugvelli, hvort sem hann er hugsaður til vara við núverandi millilandaflugvelli eða til að létta álagi af öðrum flugvöllum á suðvesturhorni landsins. Hér má t.d. horfa til kennslu- og æfingaflugs, einkaflugs og vöruflutninga.“\r\n\r\nByggðarráð fól sveitarstjóra að koma skoðun byggðarráðs á framfæri við yfirvöld samgöngumála og leggja mat á hvort ástæða sé til að sveitarfélagið hafi frumkvæði að frumathugun á mögulegum kostum.",
"innerBlocks": []
}