
Auðarskóli í Búðardal. Ljósm. úr safni/sm.
Skólasetning í Auðarskóla í Búðardal er þriðjudaginn 23. ágúst
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Skólasetning Auðarskóla í Dölum fer fram þriðjudaginn 23. ágúst og kennsla hefst samkvæmt stundaskrá morguninn eftir, miðvikudaginn 24. ágúst. Nemendur skólans verða 88 talsins í vetur og er það svipaður fjöldi og verið hefur. Herdís Erna Gunnarsdóttir er nýr skólastjóri Auðarskóla og hún segir að vel hafi gengið að manna starfslið skólans fyrir veturinn. „Það gekk vel að manna. Við erum með reynda kennara og svo erum við með fólk sem hefur verið hjá okkur í nokkurn tíma, er í kennaranámi og er búið með stóran hluta þess. Í raun réðum við bara inn einn nýjan starfsmann sem mun sinna kennslu í vetur.“\r\n\r\nVeturinn leggst vel í Herdísi og hún segir margar hugmyndir vera uppi á borðum að skemmtilegum verkefnum og hlakkar til samtals við starfsfólkið sitt. „Við ætlum að reyna að vera strax með útivistardag, helst bara fimmtudaginn 25. ágúst ef veður er gott, þá verður útikennsla í öllum bekkjum skólans og þetta verður svona „útivistardagur í héraði.“",
"innerBlocks": []
}