Framhaldsskólarnir á Vesturlandi að hefja vetrarstarfið

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Skólastarf er nú að hefjast um landsbyggðina alla en á Vesturlandi eru þrír framhaldsskólar, auk bændadeildarinnar við LbhÍ á Hvanneyri; Fjölbrautaskóli Snæfellinga í Grundarfirði, Fjölbrautaskóli Vesturlands á Akranesi og Menntaskóli Borgarfjarðar í Borgarnesi. Hefjast skólarnir allir nú í vikunni. Aðsókn í skólana er góð þetta haustið og talsverð nýsköpun í gangi hjá þeim. Skessuhorn tók stöðuna hjá skólunum og forvitnaðist nánar um stefnu komandi vetrar.\r\n\r\n<strong>Stórt ár í stækkandi skóla MB</strong>\r\n\r\nMenntaskóli Borgarfjarðar fer stækkandi en skólinn leggur áherslu á nýsköpun í kennslu. Því eru spennandi tímar framundan í skólanum, að sögn Braga Þórs Svavarssonar skólameistara. Fjöldi skráðra nemenda við skólann er rúmlega 150 manns, enn er þó verið að taka á móti skráningum nemenda í fjarnám. Mjög vel hefur gengið að manna kennarastöður en lítilvægar mannabreytingar verða nú á milli ára. Framundan eru miklar nýjungar við skólann sem munu hefjast á komandi skólaári. Verið er að innrétta og setja upp Framtíðarverið Kviku sem er náms- og kennslurými fyrir ýmsa skapandi vinnu sem tengst getur öllum áföngum skólans. Rýmið mun bæði verða opið nemendum og kennurum skólans sem og almenningi og öðrum skólastigum eins og færi gefst. Í rýminu má nýta aðgang að tækjum og hugbúnaði sem gagnast í verklegum greinum ásamt þjálfun í stafrænni hönnun og miðlun. Á vorönn hefst fyrsti áfanginn af þremur í STEAM, en allir nemendur skólans munu sitja þrjá slíka áfanga. STEAM er nýsköpunarverkefni þar sem nemendur fá innsýn inn í heim fagfólks í tækni, vísindum, stærðfræði, verkfræði og listum með tengingu við atvinnulíf, samfélag og umhverfi. Bragi segir næsta skólaár vera stórt ár í stækkandi skóla og spennandi tíma framundan. Mótttaka nýnema var í gær, miðvikudaginn 17. ágúst og hófst kennsla samkvæmt stundaskrá í dag.\r\n\r\n<strong>Rúmlega hundrað nýnemar við FVA</strong>\r\n\r\nSkólaárið fer vel af stað í Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi, að sögn Steinunnar Ingu Óttarsdóttur skólameistara. Aðsókn í skólann er mjög góð, alls eru 120 nýnemar á þessu hausti á níu námsbrautum. Nemendur eru alls 550 og á heimavistinni verða 40 nemendur. Afreksíþróttir er vinsæl námsgrein þar sem nemendur fá utanumhald, sérhæfða þjálfun og námseiningar en alls verða 77 nemendur í afreksíþróttum í átta greinum á þessu hausti. 27 nemendur eru skráðir í dreifnám í húsasmíði en færri komust að en vildu. Nýr hópur sjúkraliðanema fer einnig af stað í haust.\r\n\r\nNámskrá FVA var endurskoðuð í vor en fyrri útgáfa var frá 2019. Innihald í nokkrum áföngum hjá nýnemum hafa verið í endurskoðun og verður nýtt námsefni prufukeyrt nú í haust. Ellefu nýir hefja störf við skólann á haustönn en sex kennarastöður voru auglýstar í vor auk stöðu námsráðgjafa og stuðningsfulltrúa á starfsbraut. Alls sóttu 38 manns um þessi störf. Það sætti tíðindum að í vor hættu þrír kennarar störfum, en hver um sig hafði kennt í yfir 30 ár við skólann. Það eru þeir Gunnar Magnússon, Steinn Mar Helgason og Ólafur Haraldsson, öðlingar sem nú njóta ávaxtanna af erfiði sínu, segir skólameistari. Framkvæmdum við skólahús lauk nú í ágúst en þær stóðu yfir allt síðasta skólaár. Nemendur 10. bekkjar Grundaskóla fá áfram húsaskjól hjá FVA á meðan á byggingaframkvæmdum stendur þar á bæ. Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá í dag, fimmtudaginn 18. ágúst. Nýnemamóttaka var í gær og stjórn nemendafélags hefur lagt drög að fjörugu félagslífi fyrir veturinn.\r\n\r\n<strong>Átjánda starfsár FSN að hefjast</strong>\r\n\r\nÍ Fjölbrautaskóla Snæfellinga eru 200 nemendur innritaðir í skólann en 80 nemendur stunda nám í fjarnámi og um 120 nemendur eru í dagskóla. Skólinn hefur rekið framhaldsdeild á Patreksfirði frá árinu 2007 en þar verða 16 nemendur þetta skólaárið og er Svanhvít Sjöfn Skjaldardóttir nýr deildarstjóri þar. Allar kennarastöður skólans eru skipaðar fólki með kennsluréttindi en við skólann starfar áhugasamur hópur sem vill fylgjast með nýjungum, að sögn Hrafnhildar Hallvarðsdóttur skólameistara.\r\n\r\nÍ vetur mun skólinn vinna að nýrri stefnu en hann fékk styrk frá Sprotasjóði til verkefnisins. Dagskólanemendum hefur fækkað tímabundið vegna fámennra árganga úr grunnskóla og verður þess vegna kennsla í skólanum fjóra daga vikunnar en á föstudögum fer öll kennsla fram á TEAMS. Hrafnhildur segir einkunnarorð skólans vera; „framsækinn framhaldsskóli,“ en kennarar tileinka sér nú nýja tækni til notkunar í kennslunni. Nemendur skólans geta valið um fimm brautir til stúdentsprófs og er nýjasta brautin; nýsköpunar- og frumkvöðlabraut. Námi á nýsköpunarbraut er ætlað að veita nemendum góða, almenna undirstöðuþekkingu í bóklegum og verklegum greinum með áherslu á nýsköpun og tækni. Nemendur af þessari braut hafa tekið þátt í MeMa en það er viðurkenndur áfangi fyrir framhaldsskólanemendur og um leið samkeppni milli framhaldsskóla. Í haust ætlar skólinn einnig að setja á stofn íþróttaakademíu í samvinnu við íþróttafélög á svæðinu. Nýnemadagur var í gær, skólasetning er í dag og hefst þá einnig kennsla samkvæmt stundaskrá.",
  "innerBlocks": []
}
Framhaldsskólarnir á Vesturlandi að hefja vetrarstarfið - Skessuhorn