
Breiðin. Ljósm. gj.
Nýsköpun og sjálfbærni á Breiðinni
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Næstkomandi, þriðjudag 23. ágúst, verður ráðstefna á Akranesi um nýsköpun og sjálfbærni. Það er Símenntunarmiðstöðin á Vesturlandi sem skipuleggur ráðstefnuna sem verður á Breiðinni og stendur yfir frá kl. 9 til 12. Yfirskriftin og þar með heiti ráðstefnunnar er Nýsköpun sem leið til sjálfbærni. Þar flytja erindi Kristinn Lár Hróbjartsson framkvæmdastjóri Running Tide á Íslandi, Auður Finnbogadóttir stefnustjóri hjá Kópavogsbæ, Bragi Þór Svavarsson skólameistari Menntaskóla Borgarfjarðar, Gísli Gíslason stjórnarformaður NÝVEST og fleiri. Einnig mun erlendi fyrirlesarinn Aggeliki Vassilioua fjalla um EGS (Environmental Social and Governance). Það er skammstafað UFS á íslensku og stendur fyrir umhverfi, félagslega þætti og stjórnarhætti, eða hvernig fyrirtæki geta með markmiðasetningu og upplýsingagjöf sýnt samfélagslega ábyrgð í verki.\r\n\r\nRáðstefnan hefst kl. 9 á morgunverði og kynningu á veggspjöldum frá ýmsum fyrirtækjum sem hafa unnið þau með aðstoð SINTRA teymisins. SINTRA (Achieving Sustainability through INTRApreneurship) er fræðsla og ráðgjöf sem gengur út á að styðja fyrirtæki til að virkja innri nýsköpun til aukninnar sjálfbærni. Dagskráin heldur svo áfram með framsögum frá kl. 9.30 og lýkur með hádegisverði. Nánari upplýsingar má sjá á heimasíðu Símenntunarmiðstöðvarinnar, wwww.simenntun.is",
"innerBlocks": []
}