Beðið umsagnar um heiti nýs sameinaðs sveitarfélags

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Fimmtán dögum eftir síðustu sveitarstjórnarkosningar varð til nýtt sveitarfélag á norðanverðu Snæfellsnesi, með sameiningu Stykkishólmsbæjar og Helgafellssveitar. Bæjarstjórn var kjörin fjórtánda maí og hefur hún nú sent átta tillögur að væntanlegu heiti sveitarfélagsins til Örnefnanefndar að undangenginni könnun meðal íbúa.\r\n\r\nSöfnun hugmynda um nafn sameinaðs sveitarfélags Stykkishólmsbæjar og Helgafellssveitar lauk 1. júní sl. með rafrænu samráðskerfi þar sem allar tillögurnar birtust nafnlaust á vefsvæðinu. Mörgum tillögurnar fylgdu skýringar. Þeir sem treystu sér ekki til að nýta rafrænar lausnir var jafnframt velkomið að koma tillögum á skrifstofu Stykkishólmsbæjar eða fá aðstoð við að setja inn hugmyndir rafrænt. Tillögurnar sem samþykkt var af bæjarstjórn að senda til umsagnar Örnefndanefndar eru þessar:\r\n\r\nBreiðafjarðarbyggð, Breiðafjarðarbær, Helgafellssveit, Stykkishólmsbær, Stykkishólmsbær og Helgafellssveit, Stykkishólmur og Helgafellsveit, Sveitarfélagið Stykkishólmur og Þórsnesþing.\r\n\r\nÖrnefnanefnd er stjórnsýslunefnd á vegum mennta- og menningarmálaráðuneytis og starfar á grundvelli laga um örnefni. Hún hefur margþætt hlutverk og veitir m.a. umsagnir um nöfn á nýjum sveitarfélögum. Nefndin miðar í störfum sínum að varðveislu íslensks menningararfs og verndun örnefna. Einnig er það hlutverk hennar að tryggja að ný örnefni séu í samræmi við íslenska málfræði og íslenska málvenju og staðhætti og örnefnahefð viðkomandi svæðis. Formaður örnefnanefndar er Bergur Þorgeirsson framkvæmdastjóri Snorrastofu í Reykholti og segir hann að nefndin muni taka tillögurnar til skoðunar næstkomandi mánudag.\r\n\r\nJakob Björgvin Jakobsson bæjarstjóri segir það spennandi en á sama tíma vandasamt verkefni að ákveða heiti á nýju sveitarfélagi. „Þannig að við viljum vanda til verka í þessu eins og öðru sem hefur tengst sameiningarferlinu til þessa. Heiti á sveitarfélagi skipar jafnframt mikilvægan sess í hjörtum margra íbúa og því er mikilvægt að málsmeðferðin og ferlið taki mið af og beri virðingu fyrir því. Ég geri ráð fyrir því að næstu skref verði þau að þegar umsögn Örnefndanefndar liggur fyrir munum við taka málið aftur til umræðu á vettvangi sveitarfélagsins og ákveða næstu skref og þá sérstaklega hvernig við getum virkjað íbúa til jákvæðrar þátttöku í ákvörðunartökuferlinu.“",
  "innerBlocks": []
}
Beðið umsagnar um heiti nýs sameinaðs sveitarfélags - Skessuhorn