Varað við mikilli úrkomu á norðvestanverðu landinu

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Spáð er norðlægri átt, 5-10 m/sek í dag, en 10-18 um landið vestanvert síðdegis, hvassast norðvestantil á landinu. Rigning með köflum á norðanverðu landinu, talsverð eða mikil norðvestantil, skúrir eystra, en annars úrkomuminna. Hiti 7 til 15 stig og svalast á Vestfjörðum.\r\n\r\nÁ morgun, laugardag, verður norðan 5-15 m/sek, hvassast vestantil. Rigning norðantil, skúrir fyrir austan, en annars bjart með köflum. Heldur svalara fyrir norðan, en annars svipað hitastig.\r\n\r\nVeðurstofan varar við mikilli úrkomu sem fylgir þessari lægð og gefur út gula viðvörun vegna hættu á skriðuföllum á norðanverðum Vestfjörðum, Ströndum og Norðurlandi vestra.",
  "innerBlocks": []
}
Varað við mikilli úrkomu á norðvestanverðu landinu - Skessuhorn