Bláberjalyng í Stafholtstungum í Borgarfirði. Myndin var tekin á berjamó í síðustu viku. Þrátt fyrir allt voru nokkur þroskuð bláber á þessu lyngi, en engin á þeim flestum. Ljósm. mm.

Útlit er fyrir lélega berjasprettu á Vesturlandi

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Nú þegar komið er fram í miðjan ágúst eru margir sem gengið hafa til berja. Nú blasir við að berjaspretta þetta sumar er léleg í landshlutanum. Í maí var útlitið þó býsna gott og margir sætukoppar á berjalyngi sem bjuggu sig undir að breytast í safarík ber þegar liði á sumarið. Í júnímánuði gerði hins vegar bæði næturfrost einu sinni og hvassviðri og virðist sem það hafi haft áhrif. Fáir sólardagar í sumar hafa svo ekki verið til að bæta aðstæður. Þannig er því almennt útlit fyrir lélega berjasprettu á Vesturlandi. Engu að síður er ástæða til að hvetja fólk til að gá sem víðast, þó ekki væri nema til að njóta hollrar og nærandi útiveru.\r\n\r\nÍ uppsveitum Borgarfjarðar, t.d. í Skorradal og Stafholtstungum er lítið um bláber og aðalbláber, þar sem slíkt lyng er að finna. Þá eru krækiber smá. Í Dölum er sömuleiðis léleg berjaspretta, nær engin aðalbláber. Bláber þurfa að lágmarki viku í viðbót til þroska en mun minna er af þeim í samanburði við síðasta ár. Að sögn Helgu Elínborgar Guðmundsdóttur á Erpsstöðum í Dölum eru flestir sem koma við í ísbúðinni þar, eftir berjaferð vestur fyrir Gilsfjörð, sem segja að bláberjaspretta þar um slóðir sé léleg, fá ber og óþroskuð þau sem eru.",
  "innerBlocks": []
}
Útlit er fyrir lélega berjasprettu á Vesturlandi - Skessuhorn