Séð yfir Stykkishólm

Grunnskólinn í Stykkishólmi verður settur miðvikudaginn 24. ágúst

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Setningarathöfn Grunnskólans í Stykkishólmi fer fram miðvikudaginn 24. ágúst klukkan 10 fyrir 1.-7. bekk og klukkan 11 fyrir 8.-10. bekk. Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá daginn eftir, fimmtudaginn 25. ágúst. Vel hefur gengið að manna lausar stöður við skólann og er ráðningum lokið utan einnar stöðu sem enn er auglýst, það er staða kennara í list- og verkgreinum. Við skólann eru 20 kennarastöður sem mannaðar eru ýmist af faglærðum kennurum eða leiðbeinendum sem eru í kennaranámi. Þá er einn leiðbeinandi sem er menntaður matvælafræðingur.\r\n\r\nTöluverð fjölgun er á nemendum. Í vetur verða 165 nemendur við skólann en þeir voru 151 síðasta vetur. Ástæðan fyrir þessari fjölgun er sú að í vor útskrifaði skólinn sjö nemendur úr 10. bekk og var það sögulega fámennur útskriftarbekkur í skólanum. Nú innritast svo 19 nemendur í fyrsta bekk. Berglind Axelsdóttir, skólastjóri, segir skólann horfa fram á meiri fjölgun næstu árin. Búið sé að stækka leikskólann í bænum og nú sé grunnskólinn í ákveðnum breytingafasa. „Það er verið að taka kjallarann í skólanum í gegn og verið að breyta kennslurýmum þar. Það er svolítið spennandi verkefni því þar ætlum við til dæmis að setja upp snillismiðju sem má kannski segja að sé eins konar byrjunarfasi af FabLab.“ Í kjallaranum verða kenndar list- og verkgreinar og þar verður einnig til húsa svokallað „Regnbogaland,“ sem er eins konar gæsla eða frístund fyrir börn að loknum skóladegi. „Við erum mjög spennt fyrir þessum breytingum og veturinn leggst vel í okkur og svo horfum við fram á vonandi hefðbundinn skólavetur eins og var fyrir Covid,“ segir Berglind að lokum.",
  "innerBlocks": []
}