Grundaskóli á Akranesi

Grundaskóli á Akranesi hefst á þriðjudag, 23. ágúst

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Setningarathöfn Grundaskóla á Akranesi verður mánudaginn 22. ágúst og byrjar klukkan níu þegar fyrsti bekkur mætir, bekkirnir mæta svo hver af öðrum á hálftíma fresti til klukkan hálf tvö þegar tíundi og síðasti bekkurinn mætir. Börnin verða viðstödd litla athöfn á sal og fara svo í heimastofurnar sínar þar sem þau hitta kennara og fá afhentar stundatöflur. Strax daginn eftir, 23. ágúst, hefst kennsla samkvæmt stundaskrá.\r\n\r\nÍ vetur verða í kringum 690 nemendur í skólanum sem er svipaður fjöldi og verið hefur síðustu ár. Vel gekk að manna í þær stöður sem auglýstar voru og segir Sigurður Arnar Sigurðsson, skólastjóri, að skólinn sé skipaður úrvals starfsfólki. „Við vorum til að mynda að ráða inn þrjá nýja raungreinakennara og ætlum okkur að reyna að efla raungreinakennslu, svo sem líffræði, eðlisfræði og efnafræði, í samstarfi við FVA.“\r\n\r\nÝmsar tilfæringar hafa verið í skólastarfi Grundaskóla síðustu ár þar sem skólinn stendur í miklum endurbótum á byggingum. Nemendur í 10. bekk hafa verið með sitt aðsetur í Fjölbrautaskóla Vesturlands og verður svo áfram næstu ár. Gamla stjórnunarálma skólans er nú lokuð vegna endurbóta. Verið er að breyta henni í kennsluálmu sem von er til að verði tilbúin núna í október og 9. bekkur mun þá færa sig þangað. Þar til gamla stjórnendaálman verður tilbúin þarf Grundaskóli að leysa sín mál með bráðabirgðalausnum; þá verður t.a.m. útikennsla, kennsla á sal og gangar skólans einnig nýttir. Fleiri framkvæmdir eru einnig á dagskrá í skólanum; C-álma skólans verður boðin út á evrópska efnahagssvæðinu á næstu mánuðum og eiga framkvæmdir við hana að hefjast strax á næsta ári. Til stendur að Grundaskóli fái eftir áramót það húsnæði sem leikskólinn Garðasel er í núna og þarf þá að ráðast í endurbætur á því húsnæði og skólalóðinni. Þar verða líklega kenndar list- og verkgreinar til að byrja með en svo mun frístund Grundaskóla færast þangað.",
  "innerBlocks": []
}
Grundaskóli á Akranesi hefst á þriðjudag, 23. ágúst - Skessuhorn