
Bárður Jóhönnuson ásamt Svavari Kristmundssyni. Ljósm. af.
Eini báturinn á makrílveiðum frá Ólafsvík
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Báturinn Júlli Páls SH byrjaði nýverið makrílveiðar frá Ólafsvík. Hefur hann aflað ágætlega, eða upp í sex tonn yfir daginn. Var hann aflahæsti löndunarbáturinn í Ólafsvík í liðinni viku. Bárður Jóhönnuson skipstjóri segir að veiðarnar gangi þolanlega en það sé hins vegar erfitt að vera eini báturinn á þessum veiðum. Því þurfi að leita makrílinn uppi einn, svæðið sé stórt og því ekki alltaf auðvelt að finna makrílinn sem er hraður fiskur og fljótur að færa sig til og oft sé þetta því heilmikill eltingarleikur. Bárður segir að þeir séu að veiða í beitu fyrir annan bát sem útgerðin á; línubátinn Kristinn HU.\r\n\r\nAð sögn Bárðar er aflinn heilfrystur á Fiskmarkaði Snæfellsbæjar. „Við sjáum til hvað við verðum lengi á þessum veiðum í ár en það fer að sjálfsögðu eftir aflabrögðum.“ Aðspurður um verð á makrílnum segir Bárður að hann hafi heyrt að þeir sem kaupa og verka makríl á Suðurlandi hafi boðið 150 krónur fyrir kílóið.",
"innerBlocks": []
}