Bjarni með lamadýri í fjöllum Perú.

Fjallgöngur á framandi slóðum reyna oft meira á andlegu hliðina en þá líkamlegu

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "„Að stunda fjallgöngur hefur gefið mér afskaplega mikið. Það er áskorunin, félagsskapurinn, ósnortin náttúra Íslands og síðast en ekki síst að kynnast fólki; lifnaðarháttum, mannlífi og fegurð í fjarlægum löndum þar sem ég hef gengið. Ég var í Tanzaníu og fór þar á topp Kilimanjaro fjallsins og svo gekk ég Inkastíginn í Perú núna í vor,“ segir Bjarni Einar Gunnarsson í samtali við blaðamann Skessuhorns. Hann hefur á síðustu árum farið í ótal fjallaferðir, m.a. fjórum sinnum á Hvannadalshnjúk á Vatnajökli.\r\n\r\n<strong>Ferð á Hvannadalshnjúk kveikti áhugann</strong>\r\n\r\n„Ég hef alltaf verið mikið fyrir útiveru og fundist nauðsynlegt að hreyfa mig. Var mikið í fjörunni fyrir neðan æskuheimili mitt á Vesturgötunni og hoppaði þar í klettunum. Kannski var ég bara heppinn að hafa verið lélegur í fótbolta á yngri árum, þá væru fæturnir kannski ekki í eins góðu standi og þeir eru í dag. Áhuginn byrjaði hjá mér fyrir alvöru þegar hópur frá Íslenska járnblendifélaginu, þar sem ég starfaði, ákvað að ganga á Hvannadalshnjúk árið 2009. Eftir þá ferð fann ég að ég hafði gaman að þessu, en fram að því hafði ég mest gengið hérna í kringum Skagann og farið á Akrafjallið. Ég frétti síðan af því að Hjörtur Hróðmarsson hérna á Akranesi hefði stofnað fjallgönguhóp sem hét Skaginn á toppinn. Ég fór að ganga með þeim og það var farið tvisvar til þrisvar í mánuði í fjallgöngur. Svo þróaðist það þannig að ég og Ingólfur Hafsteinsson höfðum verið saman í spinning tímum og hann benti mér á hóp sem hann var í sjálfur og heitir Toppfarar. Ég ákvað að slá til en það var árið 2018. Það er farið í göngur alla þriðjudaga allt árið um kring og svo í lengri göngur á laugardögum allan ársins hring hvernig sem viðrar. Með Toppförum hef ég séð ótrúlega marga flotta staði. Ég hafði t.d. fordóma gagnvart Reykjanesinu, „lágt og ljótt,“ en þar er fullt af flottum stöðum.“\r\n\r\nBjarni segir að síðan hafi myndast hópur sem náði vel saman og fór að skipuleggja sínar eigin ferðir fyrir utan skipulagðar ferðir með Toppförum og meðal annars hefði hópurinn sem hann var í á dögunum verið við Rauðasand í Barðastrandarsýslu í nokkra daga í tjöldum og gengið út frá þeim stað. Ætlunin hefði verið að fara á Hornstrandir en hætt var við það vegna veðurútlits. Þessi hópur hefur gengið víðs vegar um landið, bæði á fell og fjöll.\r\n\r\n<em>Sjá opnuviðtal við Bjarna Einar Gunnarsson í Skessuhorni vikunnar.</em>",
  "innerBlocks": []
}
Fjallgöngur á framandi slóðum reyna oft meira á andlegu hliðina en þá líkamlegu - Skessuhorn