Laugargerðisskóli

Laugargerðisskóli hefst að morgni mánudagsins 22. ágúst

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Engin eiginleg skólasetning er í Laugargerðisskóla en skólastarf hefst að morgni 22. ágúst. Nemendur mæta þá með skólabíl í skólann eins og aðra daga ársins en dagurinn verður styttri en á að venjast og óformlegri.\r\n\r\nMikil breyting varð á starfsliði skólans nú í sumar. Þrjár kennarastöður eru við skólann og ráðnir voru inn nýir kennarar í tvær þeirra. Þá var einnig ráðinn inn nýr stuðningsfulltrúi.\r\n\r\nÍ ár stefnir í að 14 nemendur verði við skólann, þar af eru fimm börn frá Þýskalandi og tvö börn frá Litháen. Fjölmennasti bekkur skólans er 6. bekkur, í honum eru fjórir nemendur. Annars er dreifing nemenda á bekkina nokkuð jöfn, en ekki eru nemendur í öllum árgöngum.\r\nSíðustu ár hefur Laugargerðisskóli tekið inn núllta bekk á vorönn, það eru nemendur sem eiga að hefja skólagöngu í fyrsta bekk komandi haust. Sigurður Jónsson, skólastjóri, segir að því verði haldið áfram og vonast jafnvel til að geta tekið inn núllta bekk fyrr í ár eða strax þegar líður á haustið.",
  "innerBlocks": []
}
Laugargerðisskóli hefst að morgni mánudagsins 22. ágúst - Skessuhorn