
Grunnskólinn á Reykhólum.
Fyrsti skóladagur Reykhólaskóla er á mánudag
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Reykhólaskóli hefst mánudaginn 22. ágúst með svokölluðum tvöföldum degi en þá er skólasetning og kennsla hefst svo í beinu framhaldi af henni. Í vetur eru 30 nemendur skráðir í grunnskólann og 12 börn eru í leikskóladeild skólans.\r\n\r\nNýr skólastjóri var ráðinn í sumar og er það hún Anna Margrét Tómasdóttir, sem áður var forstöðumaður ungmennabúðanna á Laugum og síðar Laugarvatni. Vel gekk að ráða í lausar stöður við skólann og er hann vel mannaður, að sögn Önnu Margrétar. Fimm kennarar verða við kennslu í vetur í fjórum stöðugildum auk iðjuþjálfa og stuðningsfulltrúa. „Það er jákvæð og góð stemning í sveitarfélaginu og ég held að flestir séu spenntir fyrir vetrinum, ég veit að ég er það,“ segir Anna Margrét.\r\n\r\nÞað verður nóg um að vera í Reykhólaskóla í vetur og áfram verður samstarf við aðra minni skóla eins og á Hólmavík og í Búðardal en unglingadeild Reykhólaskóla hefur t.d. mætt þangað í félagsmiðstöðvar.\r\n\r\nÞá er Reykhólaskóli einn af samstarfsaðilum verkefnisins „Lærissneið,“ en í því verkefni hittast nemendur, í unglingadeildum fámennra skóla, á netinu og velja sér þar valgrein sem þeir hafa áhuga á. Valgreinar sem verða í boði í vetur eru t.a.m. kökuskreytingar, eðlis- og efnafræðival, kvikmyndagerð, kynjafræði og rafíþróttir. Með þessu verkefni er fámennari skólum gert kleift að bjóða nemendum upp á fjölbreyttari valgreinar svo allir finni eitthvað við sitt hæfi.",
"innerBlocks": []
}