
Heiðarskóli í Hvalfjarðarsveit
Heiðarskóli í Hvalfjarðarsveit verður settur mánudaginn 22. ágúst
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Skólasetning í Heiðarskóla verður mánudaginn 22. ágúst kl. 16 og hefst kennsla samkvæmt stundaskrá daginn eftir, þriðjudaginn 23. ágúst. Í vetur verða í skólanum ríflega 90 nemendur sem er smávægileg fjölgun frá síðasta ári. Í skólanum er þriðji bekkur fjölmennastur, í honum eru 16 börn eða tæplega 18% af nemendum skólans. Fámennastur er annar bekkur með fjóra nemendur.\r\n\r\nBúið er að manna í þær 12 kennarastöður sem eru við skólann og tókst það vel. Einungis þrír sem sinna starfi kennara næsta vetur hafa ekki lokið réttindanámi, tveir þeirra eru þó á lokametrunum með það nám.\r\n\r\nRáðist var í viðhald og framkvæmdir á skólabyggingunni í sumar og þar er nú verið að binda lausa enda og sér skólastjórinn Sigríður Lára Guðmundsdóttir fram á að framkvæmdum ljúki áður en skólastarf hefst nú í næstu viku.",
"innerBlocks": []
}