Brekkubæjarskóli á Akranesi
Brekkubæjarskóli á Akranesi

Skólasetning Brekkubæjarskóla á Akranesi verður mánudaginn 22. ágúst

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Brekkubæjarskóli verður settur mánudaginn 22. ágúst kl. 10 og hefst kennsla samkvæmt stundaskrá daginn eftir, þriðjudaginn 23. ágúst. Nemendur skólans eru 474 þennan veturinn og er svipaður fjöldi og verið hefur. Búið er að manna í allar kennarastöður við skólann og gekk það vel.\r\n\r\nStarfsfólkið er spennt fyrir komandi vetri án sóttvarnatakmarkana. „Já, við erum bara full tilhlökkunar og spennt fyrir því að fara inn í næsta skólaár og geta t.d. boðið upp á morgunstundir þar sem allir bekkir eru saman,“ segir Elsa Lára Arnarsdóttir, aðstoðarskólastjóri í samtali við Skessuhorn.\r\n\r\nEldsvoði varð í smíðastofu Brekkubæjarskóla í janúar á þessu ári og olli hann töluverðu tjóni í því rými. Hluti skólans varð ónothæfur í nokkurn tíma á eftir því mikil lykt var í húsinu og loftgæði slök. Þá þurfti að færa nokkra bekki tímabundið í annað húsnæði og var t.a.m. kennt í Þorpinu, Akraneskirkju og Tónlistarskóla Akraness um tíma. Elsa Lára segir húsnæði Brekkubæjarskóla ekki vera uppgert að fullu eftir eldsvoðann, en ástandið sé orðið nokkuð gott. „Já, þetta er mikil bót frá því sem áður var. Nú fer allt skólastarf fram inni í Brekkubæjarskóla og við þurfum ekki að nýta húsnæði annars staðar í bænum. Frístundin verður einnig inni í Brekkubæjarskóla fram eftir haustinu, í stofum 1. bekkjar og niður að gamla Ási, á meðan Garðasel er með frístundina okkar, Þekjuna, að láni.“",
  "innerBlocks": []
}
Skólasetning Brekkubæjarskóla á Akranesi verður mánudaginn 22. ágúst - Skessuhorn