Grunnskólinn í Borgarnesi

Skólasetning í Grunnskólanum í Borgarnesi mánudaginn 22. ágúst

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Setningarathöfn Grunnskólans í Borgarnesi verður í íþróttahúsinu í Borgarnesi klukkan 10, mánudaginn 22. ágúst, og hefst hefðbundin kennsla degi síðar skv. stundaskrá. Enn eru hreyfingar á nemendafjölda skólans en endanlegur fjöldi verður öðru hvorum megin við 300. Búið er að manna í allar stöður við skólann en töluverðar hreyfingar eru á starfsliðinu. Í skólanum starfa í kringum 60 manns og af þeim voru 12 sem fóru í vor í tímabundið leyfi. Því þurfti að ráða inn nýtt fólk sem kemur inn núna og verður til skemmri tíma.\r\n\r\nSíðustu ár hefur verið töluvert rask á skólastarfi í skólanum bæði vegna framkvæmda, þar sem byggt var húsnæði undir mötuneyti og sal skólans, og vegna Covid. Júlía Guðjónsdóttir, skólastjóri, segist sérstaklega spennt fyrir því að fara inn í næsta skólavetur því hún sér fyrir sér nokkuð hefðbundið skólastarf, laust við sóttvarnatakmarkanir og tilfærslur og ónæði vegna framkvæmda. „Síðustu fimm ár hafa verið ansi strembin hér í skólanum. Fyrir Covid vorum við búin að vera í þrjú ár í framkvæmdum hér á húsnæðinu þar sem bæði var verið að byggja nýtt húsnæði undir mötuneyti og sal, sem hafði ekki verið áður í skólanum, og gera upp gamalt húsnæði með tilheyrandi raski og tilfæringum. Framkvæmdum er nú lokið inni í skólanum en eftir stendur skólalóðin sem verður vonandi kláruð sem fyrst.“\r\n\r\nGrunnskólinn í Borgarnesi er nú í innleiðingarferli til að verða réttindaskóli Unicef. Það innleiðingarferli tekur tvö ár og felst m.a. í því aukið samtal við nemendur skólans þar sem þeim er gert í ljós hver réttindi þeirra, sem barna, eru og skyldur. Margt spennandi er á döfinni í skólanum í vetur og nefnir Júlía að áfram verði unnið að auknu foreldrasamstarfi og bættum skólabrag.",
  "innerBlocks": []
}
Skólasetning í Grunnskólanum í Borgarnesi mánudaginn 22. ágúst - Skessuhorn