
Anna Margrét Tómasdóttir, nýráðin skólastjóri Reykhólaskóla. Ljósm. aðsend
Anna Margrét Tómasdóttir nýr skólastjóri Reykhólaskóla
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Anna Margrét Tómasdóttir hefur verið ráðin sem skólastjóri Reykhólaskóla á Reykhólum. Anna Margrét var forstöðumaður í Ungmennabúðum UMFÍ á Laugum í Sælingsdal frá stofnun þeirra árið 2005 og allt þar til þær lokuðu vorið 2019. Ungmennabúðirnar voru þá um haustið opnaðar á Laugarvatni og Anna Margrét var forstöðumaður þar fram í júní á síðasta ári. Þá hafði hún meðfram vinnu verið í meistaranámi í útilífsfræðum við USN í Noregi og útskrifaðist úr því námi nú í sumar. Auk þess er hún með M.ed.-gráðu í Tómstunda- og félagsmálafræði frá HÍ og er með leyfisbréf til kennslu á öllum skólastigum. Þá hefur hún kennt frítímafræði við Borgarholtsskóla og nú síðast starfaði hún sem leikskólakennari á leikskólanum Akraseli á Akranesi samhliða því að hún skrifaði M.ed.-ritgerð í útilífsfræðum.",
"innerBlocks": []
}