Skólabygging Grunnskóla Borgarfjarðar á Varmalandi. Ljósm. sþ

Grunnskóli Borgarfjarðar hefst með skólasetningu mánudaginn 22. ágúst

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Grunnskóli Borgarfjarðar verður settur mánudaginn 22. ágúst; á Hvanneyri kl. 10, á Kleppjárnsreykjum kl. 12 og á Varmalandi kl. 14. Kennsla hefst á öllum starfsstöðvum skv. stundaskrá degi síðar. Alls verða 167 nemendur við grunnskólann í vetur. Á Hvanneyri er kennt í 1.-5. bekk og þar verða 30 nemendur, á Kleppjárnsreykjum eru 95 nemendur í 1.-10. bekk og á Varmalandi verða 42 nemendur í 1.-10. bekk.\r\n\r\nBúið er að ráða í allar stöður við skólann en nú er auglýst eftir forfallakennara sem getur komið inn tímabundið til að brúa ákveðið bil. Alls er 21 kennarastaða við skólann og eru þær flestar mannaðar faglærðum kennurum. Þeir fáu leiðbeinendur sem starfa við skólann eru ýmist í meistaranámi í kennslufræðum eða með aðra háskólamenntun.\r\n\r\nÁ Varmalandi er nú tekið á móti börnum flóttafólks frá Úkraínu sem dvelur á Bifröst og er Helga Jensína Svavarsdóttir, skólastjóri, ánægð með hvernig það hefur gengið. „Það verkefni byrjaði í vor og var mjög skemmtileg viðbót við skólastarfið hjá okkur. Við vorum svo heppin að fá til okkar kennara frá Úkraínu sem hefur verið ráðin sem kennari við skólann í vetur,“ segir Helga.",
  "innerBlocks": []
}
Grunnskóli Borgarfjarðar hefst með skólasetningu mánudaginn 22. ágúst - Skessuhorn