Drengir á leið í grunnskólann Grundarfjarðar

Grunnskóli Grundarfjarðar verður settur á föstudag

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Föstudaginn 19. ágúst verður grunnskólinn settur í Grundarfirði og hefst kennsla samkvæmt stundaskrá á mánudagsmorgun 22. ágúst. Rétt rúmlega 100 börn eru skráð í skólann þennan veturinn og er það örlítil fjölgun frá því í fyrra.\r\n\r\nVel gekk að manna í þær stöður sem auglýstar voru og er Sigurður Gísli Guðjónsson, skólastjóri, ánægður með sitt starfsfólk. „Við erum með tæplega 13 stöðugildi kennara hér í skólanum og þar af eru einungis tveir sem ekki hafa leyfisbréf til kennslu og er annar af þeim í grunnskólakennaranámi.“\r\n\r\nSíðustu ár hefur verið mikið um útikennslu í skólanum og segir Sigurður að henni verði haldið áfram í vetur. „Við ætlum að einblína meira á list- og verkgreinar og íþróttastarf í vetur og halda áfram að vera mikið í útinámi.“\r\n\r\nSumarið var nýtt í endurbætur á húsnæði skólans, gerður nýr inngangur, gert við múrverk að utan og húsið málað. Vonast er til að það verkefni klárist áður en skólastarf hefst.",
  "innerBlocks": []
}
Grunnskóli Grundarfjarðar verður settur á föstudag - Skessuhorn