Fréttir

true

Ný lög um refsiábyrgð heilbrigðisstofnana og rannsókn alvarlegra atvika

Alþingi hefur samþykkt frumvarp Willums Þórs Þórssonar heilbrigðisráðherra um refsiábyrgð heilbrigðisstofnana og rannsókn alvarlegra atvika. Markmið laganna er að auka öryggi sjúklinga, efla öryggismenningu innan heilbrigðiskerfisins og fækka alvarlegum atvikum. Einnig að bæta starfsumhverfi heilbrigðisstarfsmanna með því að skýra og auka réttaröryggi þeirra. Með lagasetningunni verður unnt að koma fram refsiábyrgð á hendur heilbrigðisstofnunum fremur…Lesa meira

true

Landsvirkjun skerðir raforkuafhendingu til stóriðju á suðvesturlandi

Landsvirkjun hefur tilkynnt stórnotendum á suðvesturhluta landsins; Elkem, Norðuráli og Rio Tinto auk fjarvarmaveitum, að skerða þurfi orku til starfsemi þeirra. Þessir notendur hafa ekki sætt skerðingum fyrr á þessum vetri. Skerðingarnar hefjast 19. janúar nk. og gert er ráð fyrir að þær geti staðið allt til 30. apríl. Það fer þó eftir vatnsbúskap á…Lesa meira

true

Köld nótt í Fornahvammi

Nú í haust kom út bókin Fornihvammur í Norðurárdal. Í henni tekur María Björg Gunnarsdóttir saman ýmsan fróðleik um bæinn Fornahvamm sem er fremsti bær í Norðurárdal, uppi undir Holtavörðuheiði. Vegna staðsetningar sinnar var Fornihvammur tengdur samgöngusögu Íslendinga því oft á tíðum þurftu ferðalangar um heiðina að leita þar skjóls á för sinni í ýmsum…Lesa meira

true

Eldur kviknaði í bifreið á björgunaræfingu í ferjunni Baldri

Fimmtudaginn 14. desember fór fram björgunaræfing á Baldri í Stykkishólmi. Nemendur á efsta stigi grunnskólans í Stykkishólmi og kennarar þeirra voru farþegar á æfingunni ásamt nokkrum úr starfshópi Sæferða. Viðstaddir voru einnig fulltrúar frá öryggisdeild Eimskips, Samgöngustofu, Landsbjörgu og Survitec, fyrirtækinu sem þjónustar björgunarbúnaðinn. Alls komu 78 aðilar að æfingunni, ýmist sem þátttakendur eða eftirlitsaðilar.…Lesa meira

true

Jólatónleikar heimamanna vel sóttir

Þeir voru vel sóttir jólatónleikarnir „Er líða fer að jólum“ sem haldnir voru í Dalabúð í Búðardal laugardaginn 9. desember. Þetta er í annað sinn sem tónleikarnir eru haldnir en að baki þeim stendur fjölskyldan á Skerðingsstöðum í Hvammssveit ásamt góðum vinum. „Viðtökurnar í fyrra þegar við héldum þessa tónleika í fyrsta skipti voru framar…Lesa meira

true

Viljayfirlýsing um að hús gamla Héraðsskólans nýtist Snorrastofu

Lilja Dögg Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra átti í gær fund í Snorrastofu í Reykholti með Guðveigu Lind Eyglóardóttir forseta sveitarstjórnar Borgarbyggðar, Bergi Þorgeirssyni forstöðumanni Snorrastofu, Þorgeiri Ólafssyni formanni stjórnar Snorrastofu og séra Hildi Björk Hörpudóttir sóknarpresti í Reykholti. Tilefni fundarins var undirritun viljayfirlýsingar á milli menningar- og viðskiptaráðuneytisins, Borgarbyggðar og Snorrastofu. Í yfirlýsingunni er lýst…Lesa meira

true

Meistaraskóli FVA hefst 13. janúar næstkomandi

Í Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi er nú í boði í fyrsta sinn um langa hríð að innritast í framhaldsnám eftir sveinspróf. Mikil aðsókn er að Meistaraskóla FVA og hefja 37 nemendur námið laugardaginn 13. janúar nk. „Námið er langþráð og spennandi viðbót við fjölbreytt námsframboð skólans,“ segir Steinunn Inga Óttarsdóttir, skólameistari í samtali við Skessuhorn.…Lesa meira

true

Kynntu lokaskýrslu stýrihóps um Samfélagsmiðstöð á Akranesi

Á fundi bæjarráðs Akraneskaupstaðar fimmtudaginn 14. desember var lögð fram til kynningar lokaskýrsla stýrihóps um nýja Samfélagsmiðstöð á Dalbraut 8. Í henni kemur fram að stofnaður var stýrihópur, sem og vinnuhópur, um uppbyggingu Samfélagsmiðstöðvar snemma árs 2022. Markmið stýrihópsins var að halda utan um uppbyggingu samfélagsmiðstöðvar á Dalbraut 8 í samstarfi við framkvæmdaaðila. Dalbraut 8…Lesa meira

true

Stærsta gosið á Reykjanesskaganum hin síðari ár hófst í gærkvöldi

Eldgos hófst um þrjá kílómetra norðan við Grindavík á ellefta tímanum í gærkvöldi. Í upphafi var það talsvert stærra og kraftmeira en þau gos sem hafa orðið á svæðinu síðastliðin ár og töldu sérfræðingar að kvikan sem frá því rann væri um 200 rúmmetrar á sekúndu. Nokkuð dró úr krafti gossins þegar leið á nóttina.…Lesa meira

true

Jólaskógurinn sló í gegn

Nemendur á miðstigi í Grunnskóla Grundarfjarðar settu upp glæsilega jólasýningu í skógræktinni fyrir ofan bæinn mánudaginn 18. desember. Undirbúningur hafði staðið yfir síðustu vikur og á mánudag var afraksturinn sýndur. Þá var öllum bæjarbúum boðið til jólasýningarinnar sem hófst á því að hleypt var inn í skóginn í litlum hópum svo allir fengju að njóta…Lesa meira