
Steinunn Inga Óttarsdóttir skólameistari FVA.
Meistaraskóli FVA hefst 13. janúar næstkomandi
Í Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi er nú í boði í fyrsta sinn um langa hríð að innritast í framhaldsnám eftir sveinspróf. Mikil aðsókn er að Meistaraskóla FVA og hefja 37 nemendur námið laugardaginn 13. janúar nk. „Námið er langþráð og spennandi viðbót við fjölbreytt námsframboð skólans,“ segir Steinunn Inga Óttarsdóttir, skólameistari í samtali við Skessuhorn.