Bergur Þorgeirsson, Lilja Dögg Alfreðsdóttir og Guðveig Lind Eyglóardóttir. Ljósm. aðsend

Viljayfirlýsing um að hús gamla Héraðsskólans nýtist Snorrastofu

Lilja Dögg Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra átti í gær fund í Snorrastofu í Reykholti með Guðveigu Lind Eyglóardóttir forseta sveitarstjórnar Borgarbyggðar, Bergi Þorgeirssyni forstöðumanni Snorrastofu, Þorgeiri Ólafssyni formanni stjórnar Snorrastofu og séra Hildi Björk Hörpudóttir sóknarpresti í Reykholti. Tilefni fundarins var undirritun viljayfirlýsingar á milli menningar- og viðskiptaráðuneytisins, Borgarbyggðar og Snorrastofu. Í yfirlýsingunni er lýst vilja til þess að kanna möguleikann á því að Snorrastofa fái húsnæði Héraðsskólans í Reykholti til umráða fyrir sýningar og gestamóttöku þegar varaeintakasafn Landsbókasafns Ísland hefur verið fært úr gamla skólahúsinu. Húsið yrði þá nýtt til sýninga um Snorra Sturluson og áhrif hans í menningu samtímans, sem og undir sölu veitinga og minjagripa.

Viljayfirlýsing um að hús gamla Héraðsskólans nýtist Snorrastofu - Skessuhorn