
Stærsta gosið á Reykjanesskaganum hin síðari ár hófst í gærkvöldi
Eldgos hófst um þrjá kílómetra norðan við Grindavík á ellefta tímanum í gærkvöldi. Í upphafi var það talsvert stærra og kraftmeira en þau gos sem hafa orðið á svæðinu síðastliðin ár og töldu sérfræðingar að kvikan sem frá því rann væri um 200 rúmmetrar á sekúndu. Nokkuð dró úr krafti gossins þegar leið á nóttina. Slíkt gefur þó ekki vísbendingar um hve lengi gosið mun vara, heldur aðeins að það sé að ná jafnvægi. Gossprungan er um fjórir kílómetrar að lengd. Norðurendi hennar er rétt austan við Stóra-Skógfell, syðri endinn er rétt austan við Sundhnúk. Frá syðri endanum eru tæpir þrír kílómetrar að jaðri Grindavíkur. Lovísa Mjöll Guðmundsdóttir, náttúruvársérfræðingur hjá Veðurstofunni, sagði í samtali við Ríkisútvarpið í morgun að virknin væri að þéttast fyrir miðbik sprungunnar og að syðri hluti gangsins væri að dvína.