Fréttir

true

Bænastund í Kolbeinsstaðakirkju í kvöld

Boðað hefur verið til bænastundarsamveru í Kolbeinsstaðakirkju á Snæfellsnesi í kvöld, þriðjudaginn 19. desember klukkan 20. Sr. Brynhildur Óla Elínardóttir skrifar: „Hagalín Ágúst Jónsson liggur á gjörgæsludeild Landspítalans í Reykjavík eftir alvarlegt umferðarslys á Vesturlandsvegi fyrir um viku síðan. Hann er 18 ára gamall og fermdist í Kolbeinsstaðakirkju fyrir fjórum árum; árið 2019. Á gjörgæslu…Lesa meira

true

Framlengja samning um Bíóhöllina

Á fundi bæjarráðs 14. desember var ræddur fyrirliggjandi rekstrarsamningur Bíóhallarinnar frá árinu 2019 sem er með gildistíma frá 1. janúar 2020 til og með 31. desember 2023. Fram kom á fundinum að heimild er til framlengingar samningsins í eitt ár í senn, að hámarki tvisvar og því er ljóst að í seinasta lagi þarf að…Lesa meira

true

Nafn konunnar sem lést

Laust fyrir klukkan þrjú síðastliðinn miðvikudag varð banaslys í umferðinni á Vesturlandsvegi í Hvalfjarðarsveit, á móts við Skipanes. Þar hafði harður árekstur orðið á milli tveggja bifreiða sem þrír voru í. Í öðrum bílnum var ökumaður einn á ferð en í hinni bifreiðinni voru tveir. Ökumaðurinn, kona á sjötugsaldri sem var ein á ferð í…Lesa meira

true

Að vera hluti af samfélaginu

Rætt við Stefán Vagn fyrsta þingmann Norðvesturkjördæmis Stefán Vagn Stefánsson er fyrsti þingmaður Norðvesturkjördæmis. Skessuhorn hitti Stefán á Alþingi nú á aðventunni og ræddi við hann um líf hans, störf og skoðanir. Stefán Vagn settist á þing fyrir Framsóknarflokkinn árið 2021. Hann leiddi lista flokksins og gott gengi Framsóknar gerði það að verkum að hann…Lesa meira

true

Skerðingu skelbóta harðlega mótmælt

Lögfræðistofan Logos SLF hefur fyrir hönd tveggja útgerðarfélaga á Snæfellsnesi sent Matvælaráðuneytinu ítarlega umsögn um frumvarp matvælaráðherra um breytingar á lögum um sjávarútveg. Í umsögninni er fyrirætlunum um afnám svokallaðra skelbóta harðlega mótmælt á grundvelli þess að um sé að ræða skerðingu á afar verðmætum atvinnuréttindum. Í lok maí 2022 skipaði Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra fjóra…Lesa meira

true

Urðu jólasveinar 2023

Jólasveinatvímenningur Bridgefélags Borgarfjarðar var spilaður síðastliðinn föstudag í Logalandi. Sigurvegarar urðu þeir Heiðar Árni Baldursson og Jón Eyjólfsson og teljast því „Jólasveinar“ félagsins þetta árið. „Augljóslega taka þeir þessum sæmdartitli ekki af neinni léttúð, því fréttastofa Flóðtíðinda náði mynd af þeim glaðbeittum, þarna mitt í hlíðum Hafnarfjalls og morgunljóst að ungdómur í Borgarfirði mun eiga…Lesa meira

true

SA sigurvegari í 2. deild kvenna í sundi

Bikarkeppni Sundsambands Íslands var haldin í Laugardalslaug í Reykjavík um helgina. Sundfélag Hafnarfjarðar stóð uppi sem sigurvegari í 1. deild karla og kvenna. Sundfélag Akraness í karlaflokki varð í fjórða sæti í 1. deild. B-lið SH vann einnig í 2. deild karla og Sundfélag Akraness var sigurvegari í 2. deild kvenna. Kvennalið Sundfélags Akraness var…Lesa meira

true

Enn vantar íbúðir fyrir Grindvíkinga

Leigutorg fyrir íbúa Grindavíkur var opnað fyrir rúmri viku en þar geta þau sem sérstaklega vilja styðja við Grindvíkinga boðið eignir sínar til útleigu. „Samkvæmt nýjustu tölum eru skráðar eignir á leigutorginu 162 og þegar hafa 44 leigusamningar farið þar í gegn. Enn vantar þó fjölbreyttari eignir, bæði eftir gerð og staðsetningu, til að allir Grindvíkingar…Lesa meira

true

Börnin fengu að líta í hesthúsið

Það var sannkölluð jólastemning á Brimisvöllum hjá þeim hjónum Veronicu Osterhammer og Gunnari Tryggvasyni þegar þau buðu íbúum í Snæfellsbæ upp á svokallað jólahesthús í gær. Þá voru glæsilegar veitingar í boði þeirra hjóna fyrir gesti. Teymt var undir börnum og hestunum klappað. Börnin sem litu við þennan dag voru fjölmörg en hrossin í húsi…Lesa meira

true

Fengu að spretta úr spori

Þessir ungu piltar voru greinilega ánægðir með lífið í gærmorgun, þegar þeir fengu að spretta úr spori á léttum fjórhjólum á öruggum stað í Ólafsvík. Að sjálfsögðu voru þeir með hjálma á höfði og fyllsta öryggis gætt.Lesa meira