
Skelfiskveiðar voru stór atvinnuvegur á Snæfellsnesi áður en hörpuskelsstofninn hrundi. Hér kemur bátur að með góðan afla. Ljósm. úr safni/ Alfons Finnsson.
Skerðingu skelbóta harðlega mótmælt
Lögfræðistofan Logos SLF hefur fyrir hönd tveggja útgerðarfélaga á Snæfellsnesi sent Matvælaráðuneytinu ítarlega umsögn um frumvarp matvælaráðherra um breytingar á lögum um sjávarútveg. Í umsögninni er fyrirætlunum um afnám svokallaðra skelbóta harðlega mótmælt á grundvelli þess að um sé að ræða skerðingu á afar verðmætum atvinnuréttindum.