
Veronica teymir hér undir barni. Ljósmyndir: af
Börnin fengu að líta í hesthúsið
Það var sannkölluð jólastemning á Brimisvöllum hjá þeim hjónum Veronicu Osterhammer og Gunnari Tryggvasyni þegar þau buðu íbúum í Snæfellsbæ upp á svokallað jólahesthús í gær. Þá voru glæsilegar veitingar í boði þeirra hjóna fyrir gesti. Teymt var undir börnum og hestunum klappað. Börnin sem litu við þennan dag voru fjölmörg en hrossin í húsi voru 57, að sögn Gunnars. Veronica segir að þetta hafi verið mun betri þátttaka en þau áttu von á og fagnaði hún því.