
Bænastund í Kolbeinsstaðakirkju í kvöld
Boðað hefur verið til bænastundarsamveru í Kolbeinsstaðakirkju á Snæfellsnesi í kvöld, þriðjudaginn 19. desember klukkan 20. Sr. Brynhildur Óla Elínardóttir skrifar: „Hagalín Ágúst Jónsson liggur á gjörgæsludeild Landspítalans í Reykjavík eftir alvarlegt umferðarslys á Vesturlandsvegi fyrir um viku síðan. Hann er 18 ára gamall og fermdist í Kolbeinsstaðakirkju fyrir fjórum árum; árið 2019. Á gjörgæslu Landspítalans er ástand hans metið mjög alvarlegt. Í prestakallinu eiga margir um sárt að binda vegna þessa hörmulega slyss,“ skrifar Brynhildur. Prófasturinn, sr. Gunnar Eiríkur Hauksson, mun hafa umsjón með bænastundinni í Kolbeinsstaðakirkju.
Í ávarpi til safnaðarfólks skrifar Brynhildur: „Kæra safnaðafólk! Við skulum öll sameinast um að biðja fyrir Hagalín Ágústi að hann fái haldið lífi; hverfi ekki frá okkur í blóma lífs síns og skulum biðja fyrir fjölskyldu hans, vinum og ættingjum, sem nú bíða í von og ótta um hvað verði. Heilagur andi huggarinn veiti þeim styrk og megi allir englar guðs vaka yfir og vernda Hagalín Ágúst Jónsson og stúlku sem var honum samferða í bílnum, sem og alla sem annast þau á Landspítalanum. Þessa biðjum við í nafni frelsarans Jesú Krists.“