Nafn konunnar sem lést

Laust fyrir klukkan þrjú síðastliðinn miðvikudag varð banaslys í umferðinni á Vesturlandsvegi í Hvalfjarðarsveit, á móts við Skipanes. Þar hafði harður árekstur orðið á milli tveggja bifreiða sem þrír voru í. Í öðrum bílnum var ökumaður einn á ferð en í hinni bifreiðinni voru tveir. Ökumaðurinn, kona á sjötugsaldri sem var ein á ferð í bíl sínum, lést í slysinu. Hún hét Jóninna Huld Haraldsdóttir og var búsett á Hvanneyri. Jóninna lætur eftir sig fjögur uppkomin börn og fjölskyldur þeirra. Ökumaður og farþegi úr hinni bifreiðinni voru flutt til Reykjavíkur með þyrlu Landhelgisgæslunnar, alvarlega slösuð.

Vegurinn var lokaður fram á kvöld og löng bílaröð myndaðist beggja vegna slysstaðarins. Fjölmennur hópur viðbragðsaðila frá Akranesi og Borgarnesi kom að aðgerðum á slysstað sem og þyrlusveit Landhelgisgæslunnar.

Nafn konunnar sem lést - Skessuhorn