Ný lög um refsiábyrgð heilbrigðisstofnana og rannsókn alvarlegra atvika

Alþingi hefur samþykkt frumvarp Willums Þórs Þórssonar heilbrigðisráðherra um refsiábyrgð heilbrigðisstofnana og rannsókn alvarlegra atvika. Markmið laganna er að auka öryggi sjúklinga, efla öryggismenningu innan heilbrigðiskerfisins og fækka alvarlegum atvikum. Einnig að bæta starfsumhverfi heilbrigðisstarfsmanna með því að skýra og auka réttaröryggi þeirra.

Ný lög um refsiábyrgð heilbrigðisstofnana og rannsókn alvarlegra atvika - Skessuhorn