Ónefnd systir hennar Grýlu var nokkuð ófrýnileg en hún var sú fyrsta sem tók á móti gestum. Ljósmyndir: tfk

Jólaskógurinn sló í gegn

Nemendur á miðstigi í Grunnskóla Grundarfjarðar settu upp glæsilega jólasýningu í skógræktinni fyrir ofan bæinn mánudaginn 18. desember. Undirbúningur hafði staðið yfir síðustu vikur og á mánudag var afraksturinn sýndur. Þá var öllum bæjarbúum boðið til jólasýningarinnar sem hófst á því að hleypt var inn í skóginn í litlum hópum svo allir fengju að njóta sýningarinnar. Fyrst tók ófrýnileg systir Grýlu á móti fólki og leist yngstu kynslóðinni ekkert á kerlu. Á næstu stöð mátti finna nokkra hrekkjaálfa sem reyndu að veiða jólasveina með mistækum árangri. Á þriðju stöðinni voru svo nokkrir jólasveinar ásamt Grýlu og Leppalúða sem fóru á kostum með dansi og söng. Á fjórðu stöðinni mátti finna syngjandi jólaálfa sem tóku lagið og fóru með gamanmál og á endastöðinni var boðið uppá dýrindis piparkökur og heitt kakó. Þar var brandarajólasveinn og myndabás þar sem gestir gátu fengið mynd af sér með kátum jólasveinum.

Jólaskógurinn sló í gegn - Skessuhorn