
Kynntu lokaskýrslu stýrihóps um Samfélagsmiðstöð á Akranesi
Á fundi bæjarráðs Akraneskaupstaðar fimmtudaginn 14. desember var lögð fram til kynningar lokaskýrsla stýrihóps um nýja Samfélagsmiðstöð á Dalbraut 8. Í henni kemur fram að stofnaður var stýrihópur, sem og vinnuhópur, um uppbyggingu Samfélagsmiðstöðvar snemma árs 2022. Markmið stýrihópsins var að halda utan um uppbyggingu samfélagsmiðstöðvar á Dalbraut 8 í samstarfi við framkvæmdaaðila. Dalbraut 8 mun hýsa Fjöliðjuna, Frístundamiðstöðina Þorpið og Endurhæfingarhúsið Hver. Hlutverk og helstu verkefni stýrihóps voru að vera í reglulegri samvinnu við hönnuð Samfélagsmiðstöðvar, funda með notendum Samfélagsmiðstöðvar og öðrum hagsmunaaðilum, að leggja fram tillögu um fullgerða hönnun og útboðsgögn fyrir Akraneskaupstað og að leggja fram kostnaðaráætlun um heildarframkvæmd.