Fréttir

true

Breyttar hefðir yfir jólin hjá úkraínsku fjölskyldunni

Hjónin Sergei og Oksana Tukachov tóku vel á móti fréttaritara Skessuhorns á heimili þeirra í Grundarfirði eitt desemberkvöld í liðinni viku. Brátt verða liðin tvö ár frá því að stríðið í Úkraínu braust út og gjörbreytti aðstæðum þessarar fimm manna fjölskyldu frá Odessa í Úkraínu. Oksana kom til Íslands með börnin þeirra þrjú 6. apríl…Lesa meira

true

Aukinn stuðningur við kornrækt

Matvælaráðuneytið vekur athygli á að breytingar sem gerðar voru á reglugerð nr. 430/2021 um almennan stuðning við landbúnað síðastliðið sumar taka gildi nú um áramótin. Breytingin felst í því að nú verður jarðræktarstyrkur til kornræktar ekki skertur í samræmi við 7. gr. reglugerðarinnar. Öll kornrækt fær því fullan jarðræktarstyrk. Samhliða fellur niður sérregla um það…Lesa meira

true

Upp á þak til að sjá jökulinn

Rætt við Pétur Bogason sem nýverið lét af störfum í Ólafsvík Í daglegu lífi leiðir fólk ekki hugann að tilvist dauðans, hann er bara fjarlæg staðreynd. Áður fyrr var hann nær; þegar ástvinir dóu á heimilum og stóðu uppi inni í baðstofum. Í dag er hins vegar haft samband við útfararstjóra sem annast málin fyrir…Lesa meira

true

Komu í heimsókn á Breið

Starfsmannafélag Landbúnaðarháskóla Íslands kom í vel heppnaða vísinda- og skemmtiheimsókn í Breið þróunarfélag á Akranesi á dögunum. Vel var tekið á móti hópnum og farið yfir tilurð þróunarfélagsins og þá fjölbreyttu starfsemi sem komin er í húsið. Starfsmenn fengu síðan leiðsögn um húsið með sérstakri kynningu á Running Tide, Sedna biopack og Fab Lab smiðju.…Lesa meira

true

Tónlist, hagfræði, rannsóknir, bókalestur og útivist ríkjandi á heimilinu

Rætt við hjónin Jónínu Ernu Arnardóttur og Vífil Karlsson Jónína Erna Arnardóttir er fædd og uppalin í Borgarnesi en Vífill Karlsson í Ólafsvík. Leiðir þeirra lágu fyrst saman á sveitaballi í Lýsuhóli fyrir að verða fjörutíu árum síðan þegar sameiginlegir vinir kynntu þau hvort fyrir öðru. Hjónin hafa búið saman í Borgarnesi frá aldamótum en…Lesa meira

true

„Merkilegt að hafa verið þrjú ár að fermast“

Rætt við Ingibjörgu Hargrave sem nýverið fagnaði áttræðisafmæli sínu Hún Ingibjörg Hargrave hefur alla sína tíð búið í Borgarnesi og það í sama húsinu þar sem hún er þriðji ættliður ábúenda. Ingibjörg, sem oftast er kölluð Imba, hefur mætt ýmsu í stórsjóum lífsins. En hún heldur í lífsgleðina, umkringd fjölskyldu sinni og góðum vinum. Móðir…Lesa meira

true

Kynntu skýrslu um framtíðarsýn við öflun vindorku

Fyrir viku fór fram kynning á skýrslu sem fjallar um framtíðarsýn um vindorku á Íslandi. Málið á sér sterka tengingu við Vesturland, enda hafa komið fram hugmyndir um vindorkuver víða í fjórðungnum. Lagaumgjörðin og allt regluverk um vindorkuver hefur þó verið óljóst og hefur það verið vilji umhverfisráðuneytisins og þingmanna að á því verði skerpt.…Lesa meira

true

Atorkubændur á Stað undir hrauni

Rætt við unga og áhugasama bændur sem tekið hafa við búskap á Staðarhrauni Fyrir um það bil tveimur árum urðu eigendaskipti á bænum Staðarhrauni í Hraunhreppi á Mýrum og ungt par tók þar við búskap. Stór verkefni bíða að kaupunum loknum. Þau langar til að byggja upp húsakost og bæta við þann góða bústofn sem…Lesa meira

true

Enn er hægt að sækja um stuðning í verkefnið Samhugur í Borgarbyggð

Samfélagið í Borgarbyggð tók að þessu sinni afar vel í að leggja verkefninu Samhugur í Borgarbyggð lið, en þetta er fjórða árið í röð sem það er í gangi í aðdraganda jóla. Að sögn Margrétar Katrínar Guðnadóttur, sem er í forsvari fyrir hópinn, hafa nú safnast 3,2 milljónir króna í formi gjafabréfa, peninga, matar og…Lesa meira