Frá Borgarnesi. Ljósm. mm

Enn er hægt að sækja um stuðning í verkefnið Samhugur í Borgarbyggð

Samfélagið í Borgarbyggð tók að þessu sinni afar vel í að leggja verkefninu Samhugur í Borgarbyggð lið, en þetta er fjórða árið í röð sem það er í gangi í aðdraganda jóla. Að sögn Margrétar Katrínar Guðnadóttur, sem er í forsvari fyrir hópinn, hafa nú safnast 3,2 milljónir króna í formi gjafabréfa, peninga, matar og annarra gjafa. „Við erum búin að vera að úthluta peningum, gjafakortum, kjöti og öðrum matvælum, klippingum, jólatrjám og ýmsu fleiru. Nú er búið að úthluta stærstum hluta þess sem hefur safnast,“ segir Margrét en bætir því við að enn sé þó hægt að sækja um stuðning og aðstoð: „Það er best að senda okkur skilaboð á samhugur@samhugur.is og við getum þá brugðist við fyrir jólin, en nánari upplýsingar er hægt að finna á FB síðu okkar Samhugur í Borgarbyggð.“

Búið er að sögn Margrétar að úthluta stuðningi til 21 fjölskyldu í sveitarfélaginu, alls 62 einstaklinga. „Það er notalegt að finna hversu samfélagið hér; einstaklingar, fyrirtæki, stofnanir og félög hafa verið örlát að rétta fram aðstoð til þeirra sem minna mega sín í okkar nærsamfélagi. Ég get nefnt félög á borð við Lionsklúbbinn, Kvenfélög, Stéttarfélag Vesturlands, Skógræktarfélag Borgarfjarðar, en einnig fyrirtæki og get ég sem dæmi nefnt Mýranaut og Geitfjársetrið Háafelli sem dæmi. Það eru margir sem hafa lagt söfnuninni lið með myndarlegum hætti og ég er afar þakklát fyrir það. Með öllum úthlutunum á gjafakortum og mat fylgir svo að minnsta kosti einn pakki,“ segir Margrét Katrín að endingu.

Enn er hægt að sækja um stuðning í verkefnið Samhugur í Borgarbyggð - Skessuhorn