
Jólablað Skessuhorns er komið út – efni verður einnig aðgengilegt hér á vefnum
Hið árlega Jólablað Skessuhorns er komið út. Blaðið er að þessu sinni 120 síður. Í því er fjöldi viðtala, greina, jólatengt efni, árleg myndagáta og krossgáta, svo eitthvað sé nefnt; kveðjur úr héraði skipa sinn sess og farið yfir fréttir líðandi árs í annál.
Hægt er að nálgast blaðið á lausasölustöðum og þá er einnig bent á að viðtöl og efni í blaðinu fer jafnframt hér á vef Skessuhorns í vikunni og er þá opið áskrifendum vefjarins. Nýir vefáskrifendur eru boðnir velkomnir; skessuhorn.is/askrift