Fréttir

true

Vill fá sem mest út úr skiptinemaárinu

Mirco Minicucci er ítalskur skiptinemi sem hefur í vetur dvalið hjá fjölskyldu í Búðardal. Hann er uppalinn í úthverfi Rómar, er á sautjánda ári og gengur nú í Auðarskóla í Búðardal. Mirco er félagslyndur, hefur náð vel til skólasystkina sinna og er duglegur að taka þátt í hverju því sem í boði er í samfélaginu.…Lesa meira

true

„Margir skemmtilegir karakterar í skákinni“

Rætt við Sigurð Ómar Scheving skákáhugamann í Snæfellsbæ Félagar í Taflfélagi Snæfellsbæjar hafa frá því í september á síðasta ári hist vikulega og teflt af miklum móð. Hafa þeir einnig verið duglegir að auglýsa félagið á facebook síðu taflfélagsins. Þar er við stjórnvölinn formaðurinn og skemmtikrafturinn Sigurður Ómar Scheving sem fer aldeilis á kostum. Skessuhorn…Lesa meira

true

Eyjaféð sótt og fjárstofn frístundabænda sónaður – myndasyrpa

Í liðinni viku var mikið umleikis hjá frístundabændum í Stykkishólmi. Á sunnudeginum var rígvænu fé Lárusar Franz Hallfreðssonar smalað í Sellóni og siglt með það í land. Sellón er eyja skammt undan Ögri við Stykkishólm þar sem Lárus Franz beitir fé sínu á veturnar og hrútur að sjálfsögðu hafður með ánum til dægrastyttingar. Hafa menn…Lesa meira

true

Íbúum á Vesturlandi fjölgaði um eitt prósent á fimmtán mánuðum

Á fimmtán mánaða tímabili, frá 1. desember 2022 til 1. mars 2023, fjölgaði íbúum á Vesturlandi um 174, en það jafngildir 1% fjölgun. Hlutfallslega fjölgaði íbúum í Skorradalshreppi mest, eða um þrjá íbúa, en í fjölda talið var langmest fjölgun í Borgarbyggð, eða um 5,2% sem skýrist af að 103 fleiri búa þar en í…Lesa meira

true

Bílaumboðið Askja fyrirhugar starfsemi á Akranesi

Akraneskaupstaður og Bílaumboðið Askja hafa undirritað samning um lóðir í Grænum iðngörðum í Flóahverfi á Akranesi. Með samningnum tryggir Askja sér aðgang að lóðum sem eru yfir 14 þúsund fermetrar að flatarmáli og getur nú hannað húsnæði í takt við þá þjónustustarfsemi sem fyrirhuguð er á vegum fyrirtækisins á svæðinu. Áætluð starfsemi á lóðunum verður…Lesa meira

true

Þriðji sigur Snæfells í röð

Snæfell mætti liði Hamars/Þór í 1. deild kvenna á laugardaginn og fór viðureignin fram í Stykkishólmi. Það var hart barist frá fyrstu mínútu í leiknum og allt til enda. Í fyrsta leikhluta voru Snæfellskonur sterkari og voru með átta stiga forskot, 30:22, þegar honum lauk. Gestirnir komu til baka í öðrum leikhluta og náðu fimm…Lesa meira

true

ÍA tapaði fyrir Fjölni

ÍA gerði sér ferð í Grafarvoginn í gærkvöldi og lék gegn liði Fjölnis í 1. deild karla í körfuknattleik. Fjölnir er í harðri baráttu við Selfoss og Ármann um fjórða og síðasta sætið í úrslitakeppninni á meðan ÍA er í neðri hlutanum. Það var ljóst fljótlega í leiknum að heimamenn voru mættir til að ná…Lesa meira

true

Viljayfirlýsing undirrituð um uppbyggingu við Langasand

Akraneskaupstaður, Ísold fasteignafélag, Íþróttabandalag Akraness og Knattspyrnufélag ÍA undirrituðu í morgun viljayfirlýsingu um uppbyggingu við Langasand. Í henni felst að byggt verði hótel, baðlón og heilsulind á Jaðarsbakkasvæðinu. Jafnframt var lýst yfir samstarfi aðila um stefnumörkun í ferðaþjónustu á Akranesi. Þá er einnig áformuð uppbygging á svæði ÍA þar sem m.a. verða nýir knattspyrnuvellir fyrir…Lesa meira

true

Komu saman og stilltu strengi fyrir Góðar fréttir af Snæfellsnesi

Í morgun kom hópurinn saman sem kennir sig við Góðar fréttir af Snæfellsnesi. Nýja Þjóðgarðsmiðstöðin á Hellissandi var skoðuð en um leið stilltir saman strengir fyrir sumarið. „Við erum að taka forskot á sæluna með að upplifa þetta fallega hús og eins kemur alltaf eitthvað skemmtilegt fram á þessum fundum okkar,“ segir Hlédís Sveinsdóttir verkefnastjóri…Lesa meira