
Féð í Sellóni komið í aðhald. Ljósmyndir: sá.
Eyjaféð sótt og fjárstofn frístundabænda sónaður – myndasyrpa
Í liðinni viku var mikið umleikis hjá frístundabændum í Stykkishólmi. Á sunnudeginum var rígvænu fé Lárusar Franz Hallfreðssonar smalað í Sellóni og siglt með það í land. Sellón er eyja skammt undan Ögri við Stykkishólm þar sem Lárus Franz beitir fé sínu á veturnar og hrútur að sjálfsögðu hafður með ánum til dægrastyttingar. Hafa menn á orði að það eina sem hafi breyst við þennan eyjabúskap allt frá landnámi væri fatnaður fólksins. Bátar hafi frá upphafi verið notaðir til að ferja féð, kindur væru að líkindum svipaðar og formæður þeirra og gróðurinn enn sá sami.