Frá undirritun viljayfirlýsingar um verkefnið í morgun. F.v. Hrönn Ríkharðsdóttir formaður ÍA, Aðalsteinn Jóhannsson frá Ísold, Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri og Eggert Hjelm Herbertsson formaður stjórnar KFÍA. Ljósm. vaks

Viljayfirlýsing undirrituð um uppbyggingu við Langasand

Akraneskaupstaður, Ísold fasteignafélag, Íþróttabandalag Akraness og Knattspyrnufélag ÍA undirrituðu í morgun viljayfirlýsingu um uppbyggingu við Langasand. Í henni felst að byggt verði hótel, baðlón og heilsulind á Jaðarsbakkasvæðinu. Jafnframt var lýst yfir samstarfi aðila um stefnumörkun í ferðaþjónustu á Akranesi. Þá er einnig áformuð uppbygging á svæði ÍA þar sem m.a. verða nýir knattspyrnuvellir fyrir félagið og stórbætt aðstaða fyrir iðkendur og íbúa. Í tilkynningu frá Akraneskaupstað segir: „Svæðið er einstaklega skemmtilegt og býður nálægðin við Langasand, Guðlaugu og íþróttasvæði ÍA upp á spennandi möguleika og fáir staðir sem bjóða upp á ljósa sandfjöru sem snýr á móti suðri.“

Viljayfirlýsing undirrituð um uppbyggingu við Langasand - Skessuhorn